Lúðupanna með vínberjum

Í fyrra prófaði ég að elda hér heima þessa fiskipönnu frá Messanum. Mér þótti hún svo svakalega góð að ég hef eldað hana reglulega síðan og fór skömmu seinna á Messann, ásamt sambýlismanni mínum, til þess að prófa fleiri rétti frá þeim. Ég fékk mér bernaise plokkfisk en sambýlingurinn fékk sér steinbítspönnu, sem okkur þótti báðum stórgóð. Síðar fann ég uppskriftina að steinbítspönnunni til þess að geta prófað hana í eldhúsinu mínu. Ég gerði nokkrar breytingar á uppskriftinni, ég notaði m.a. lúðu í stað steinbíts, breytti hlutföllunum aðeins og bætti við kryddum og parmesan osti.

Útkoman var einn besti réttur sem við höfum smakkað og er í algjöru uppáhaldi hjá okkur. Við borðum hann nánast vikulega og fáum bara ekki nóg af honum. Það fæst ekki alltaf lúða, svo ég hef notað steinbít, þorskhnakka og löngu í hennar stað en við erum sammála um að lúða sé lang, lang lang best í þennan rétt. Þið bara verðið að prófa!

Lúðupanna með vínberjum

  • 4-500 g lúða
  • 200 ml hvítvín
  • 300 ml rjómi
  • 2-3 kúfaðar msk rjómaostur
  • Hveiti til að velta fiskinum upp úr
  • 1-2 msk Aromat
  • 1-2 msk Kjöt&grillkrydd
  • 1 tsk chili krydd
  • Nýmulinn svartur pipar
  • Lítið handfylli fersk steinselja, söxuð smátt
  • Ferskrifinn parmesan ostur eftir smekk
  • 1 lítil rauð paprika
  • 1 lúka rauð vínber
  • 2 lúkur ruccola
  • 1 búnt vorlaukur

Byrjið á að skera vorlaukinn og paprikuna og steikið upp úr ólífuolíu (eða jafnvel hvítlauksólífuolíu) þangað til mjúkt. Takið af pönnunni og leggið til hliðar. Skerið fiskinn í passlega bita og veltið upp úr hveiti. Steikið fiskinn á báðum hliðum upp úr vel af smjöri þangað til hann er kominn með fallega steikingarhúð. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Setjið vorlaukinn og paprikuna aftur á pönnuna og raðið fiskinum yfir. Hellið hvítvíni yfir fiskinn og látið það sjóða niður um ca. 1/3. Setjið öll kryddin saman í litla skál og kryddið fiskinn. Bætið næst rjóma, rjómaosti og ferskrifnum parmesan á pönnuna. Ég set alveg tvær heilar lúkur af parmesan osti en það er auðvitað smekksatriði. Látið sósuna þykkna aðeins og smakkið til með nýmuldum svörtum pipar, grillkryddi, aromati og chili. Þegar sósan er orðin þykk og góð er lúku af vínberjum og smátt saxaðri steinselju bætt út í og látið malla í smástund.

Þegar rétturinn er tilbúinn er 2-3 lúkum af ruccola raðað yfir réttinn á pönnunni. Ég mæli með að bera réttinn fram með hrísgrjónum, enda er aðalmálið hér að ná sem mestri sósu með hverjum bita!

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir