Dásamlegur tælenskur kjúklingaréttur

Fyrir skömmu eldaði ég þennan dásamlega góða tælenska kjúklingarétt, en hann varð til í ísskáps- og skápatiltekt hjá mér, þegar ég átti kjúklingabringur, grænmeti, mango chutney og sambal oelek sem ég vildi losna við, og þar sem ég átti fullan skáp af kókosmjólk og kókosrjóma, þá lá einhvern veginn beinast við að setja saman tælenskan […]