Himnesk sveppasósa

Maðurinn minn er alveg hreint sólginn í sveppasósur og biður oftast um sveppasósu þegar ég býð honum að ráða hvernig sósa er með matnum. Þannig varð þessi sósa til, þegar hann bað mig um að elda snitsel og hafa sveppasósu með. Ég ákvað, fyrst ég var að berja úr snitsel kjötið sjálf og gera allt […]

Gjörsamlega sturluð kokteilsósa

Ég er búin að vera frekar löt í eldhúsinu undanfarið og ákvað í kvöld að setja frosinn fisk í raspi og franskar í ofninn og bera fram með kokteilsósu og hrásalati. Ég hélt að ég ætti keypta kokteilsósu hér heima en það reyndist rangt, svo ég ákvað að hræra bara sjálf í kokteilsósu, þar sem […]

Kjúklingasósan hennar Freyju

Þessi dásamlega góða kjúklingasósa kemur frá kærri vinkonu, sem var svo elskuleg að gefa mér uppskriftina og leyfi til þess að setja hana á bloggið. Takk elsku Freyja, fyrir uppskriftina og allt hitt. Þessi sósa er svo dásamlega góð að maður gæti hreinlega drukkið hana. Ekki skemmir fyrir hvað hún er súper einföld í gerð […]

Dásamlega góð sósa með kalkún

Um páskana eldaði ég svo dásamlega kalkúnamáltíð að við ákváðum að hafa hana aftur núna í kvöld til að fagna sumardeginum fyrsta. Máltíðin var einföld en alveg stórgóð og með henni útbjó ég bestu sósu sem ég hef smakkað með kalkún, þó ég segi sjálf frá. Annað meðlæti var kartöflumús, fylling með beikoni og döðlum, […]

Ofnbökuð ídýfa með chili sultu

Fyrir skömmu útbjó ég nokkra rétti fyrir matarhornið hjá Morgunblaðinu þegar HM í handbolta stóð yfir. Ég bjó meðal annars til tortilla rúllur með döðlum og ofnbakaða ídýfu með beikoni, chili sultu, cheddar osti og vorlauk. Ég fattaði svo allt í einu eftir að ég steingleymdi að setja ídýfuna inn á bloggið, svo hér kemur […]

Köld ídýfa með kjúkling og beikoni

Ég gjörsamlega elska gömlu, góðu púrrulauksídýfuna sem samanstendur af sýrðum rjóma og púrrulaukssúpudufti. Fyrir skömmu, þá langaði mig svakalega í svoleiðis ídýfu en langaði til þess að hafa hana matmeiri og bera hana fram sem kvöldmat. Úr varð að ég blandaði saman sýrðum rjóma, rjómaosti, cheddar osti, rifnum kjúklingi og beikoni og bar herglegheitin fram […]