Quesadillas með mexíkó ostasósu

Quesadillas eru í miklu uppáhaldi hjá mér og þessi eru ekki af verri endanum. Þær eru fylltar með kjúklingi, beikoni og ostum og síðan toppaðar með mexíkó ostasósu sem setur endanlega punktinn yfir i-ð. Satt að segja urðu þessar quesadillas til í ísskápa tiltekt hjá mér og ég átti ekki von á að útkoman yrði […]
Birria Tacos og nautasoð

Þessi Birria Tacos eru alveg hreint frábær. Uppskriftina fékk ég hjá systur minni og eldaði núna um helgina. Okkur fannst þetta heppnast mjög vel og tímanum sem fer í matargerðina er klárlega vel varið. Ég ætla ekki að halda því fram að rétturinn sé hristur fram úr erminni, enda er hann það alls ekki, satt […]
Tortilla rúllur með döðlum

Fyrir skömmu útbjó ég rétti sem er upplagt að njóta yfir HM fyrir matarhornið hjá Morgunblaðinu. Ísland komst ekki áfram í þetta sinn en mér fannst nú samt upplagt að gefa uppskriftirnar af þessum réttum hér á blogginu svo fólk geti notið þeirra þrátt fyrir að þátttöku Íslands sé lokið. Einn rétturinn sem ég útbjó […]
Sturlaðar ostafylltar tartalettur

Þó ég segi sjálf frá, þá eru þessar ostafylltu tartalettur með karamelluseruðum lauk, hvítlauk, sveppum, piparosti og gullosti gjörsamlega sturlaðar. Ég hef árum saman gert tartalettur eftir uppskrift frá Evu Laufeyju og borið fram yfir Kryddsíldinni á gamlársdag (og ber þær fram með bjór og mimosum) og geri alltaf tartalettur úr afgangs hamborgarhrygg á jólunum […]
Ostastangir með pepperoni

Um daginn var ég búin að ákveða að elda kjúkling þegar ég kæmi heim úr vinnunni en fékk skyndilega löngun í eitthvað svakalega djúsí. Mig langaði í pizzu en samt ekki ef það meikar eitthvað sense? Niðurstaðan var sú að ég keypti upprúllað pizzadeig og penslaði það með smjöri og hvítlauk og raðaði svo pepperoni […]
Humarrúllur með beikoni og chili majó

Þegar ég bjó í Boston, þá hreinlega lifði ég á humar rúllum eða lobster rolls, sem eru hálfgert humarsalat sem er sett í ristað pylsubrauð og borið fram með frönskum kartöflum og heimagerðu hrásalati. Í Boston er hægt að fá þennan signature rétt á flestum veitingastöðum en ég hef ekki séð neitt í líkingu við […]
Quesadillas með pulled pork

Ég var svo heppin að fá osta að gjöf frá Gott í matinn og fór auðvitað um leið að velta fyrir mér hvað ég gæti föndrað sniðugt úr þeim. Ein hugmyndin sem ég fékk voru quesadillas með hægelduðu svínakjöti og einhverjum góðum ostum. Eldamennskan er tiltölulega einföld og vinnuframlagið lítið en það þarf að gera […]
Beikonvafin jalapeno popper pylsubrauð

Þessi beikonvöfðu jalapeno popper pylsubrauð eru alveg gjörsamlega í ruglinu góð. Hugmyndina fékk ég þegar ég sá reel á Instagram þar sem geitaosti var smurt inn í fræhreinsuð jalapeno og beikoni vafið utan um þau. Ég er ekki sérlega hrifin af geitaosti og var hrifnari af hugmyndinni um að gera þetta aðeins matmeira og datt […]