Mexíkóosta pasta og hvítlauksbrauð

Þetta mexíkóostapasta og hvítlauksbrauð með hvítlauks confit er alveg hreint brjálæðislega góð máltíð sem fellur í kramið hjá öllum aldurshópum. Þessar uppskriftir eru ekki beint hristar fram úr erminni svo þetta er eiginlega helgarmatur í mínum bókum. Hvítlauksbrauðið er algjört möst með pastanu og það er svo gott að ég gæti borðað það eitt og […]
Skinkuhorn með sinnepi og lauk

Skinkuhorn hafa verið í uppáhaldi hjá mér alveg frá því ég man eftir mér. Mér þykja þau svo æðislega góð en baka þau samt sjaldan, aðallega vegna þess að mér finnst algjört maus að útbúa þau. Þá í þessi fáu skipti sem ég baka skinkuhorn finnst mér þó tímanum mjög vel varið því skinkuhorn eru […]
Pizza með bláberjasultu

Ég fékk matarkörfu með allskonar gúmmelaði í jólagjöf frá vinnunni, sú karfa innihélt m.a. Brie ost sem mér fannst upplagt að nota á súrdeigspizzu með hráskinku. Svo datt mér í hug að nota bláberjasultu í staðinn fyrir pizzasósu og dreifa ruccola og parmesan osti yfir pizzuna. Útkoman var gjörsamlega klikkgóð og pizzan varð bara betri […]
Bestu pizzasnúðar í heimi

Þessir pizzasnúðar eru þeir allra bestu í heimi, þó ég segi sjálf frá. Ég hef alltaf verið sólgin í pizzasnúða og finnst þeir flestir frábærir en þessir eru þeir lang, lang, langbestu sem ég hef smakkað. Deigið er svakalega mjúkt og gott (uppskrift frá Evu Laufeyju) og fyllingin, sem samanstendur af hökkuðu pepperoni, ítölskum smurosti, […]
Eðlupizza með nautahakki

Eins og flestir, þá er ég mjög hrifin af eðlu. Ég elska líka matarmiklar eðlur, t.d. með kjúklingi og nautahakki og finnst sérlega gaman að útbúa slíka rétti á föstudagskvöldum og borða yfir sjónvarpinu. Eitt kvöldið datt mér svo í hug að gera eðlupizzu með nautahakki, þar sem ég átti upprúllað pizzadeig og afgang af […]