Mexíkóskt kjúklinga lasagna

Núna í kvöld eldaði ég svo frábært kjúklinga lasagna að ég má til með að setja uppskriftina strax hingað inn svo fleiri geti notið hennar. Þessi uppskrift varð til fyrir algjöra tilviljun, ég átti kjúklingabringur sem ég vildi nota í kvöld og átti líka grænmeti á síðasta snúningi sem ég vildi losna við og hálfan […]
Chicken Diablo og krydduð hrísgrjón

Einhvern tímann í sumar eldaði ég þennan rétt sem ég sá á All Recipes og varð strax spennt að prófa þegar ég sá innihaldslýsinguna. Myndin þar af réttinum var nefnilega ekkert sérlega girnileg og ég skoðaði því uppskriftina til þess að sjá hvað þetta væri eiginlega (ég hafði aldrei heyrt um Chicken Diablo) og fattaði […]
Kjúklingur í rjómasósu

Um daginn eldaði ég þennan kjúkling í rjómasósu og hann var vægast sagt dásamlega góður. Uppskriftina sá ég hjá sænskum matarbloggara á Instagram og bað vinkonu sem talar sænsku að þýða uppskriftina fyrir mig. Ég breytti uppskriftinni aðeins og útkoman var æðislegur réttur sem við hreinlega mokuðum í okkur. Ég lét duga að bera hann […]
Bourbon Chicken

Í kvöld var ég með þennan æðislega bourbon chicken í kvöldmatinn, okkur fannst hann svo góður að ég ákvað að setja hann strax á bloggið, svo fleiri gætu notið. Ég borðaði oft bourbon chicken og orange chicken þegar ég bjó í Boston og fannst réttirnir báðir frábærir, en ef ég á að vera hreinskilin, þá […]
Fajita Chicken Casserole

Þessi réttur er alveg brjálæðislega góður, hollur og súper einfaldur í gerð. Kjúklingabringur eru soðnar og tættar og blandað saman við kjúklingasoð, hrísgrjón, taco sósu, grænmeti og krydd og öllu hellt í eldfast mót og látið dúsa inni í ofni. Það er ekkert steikingarbras og það þarf ekki mikið af áhöldum til þess að útbúa […]
Hægeldaður French Onion kjúklingur

Í fyrra rakst ég á uppskrift af hægelduðum french onion kjúklingi á Facebook og fannst uppskriftin svo girnileg að ég eldaði réttinn stuttu seinna og hann vakti mikla lukku hjá okkur, svo mikla að mér var sagt að rétturinn yrði að fara beint á bloggið svo fleiri gætu prófað. En rétturinn birtist ekki fyrr en […]
Indian-Chinese Chilli Chicken

Í vetur eldaði ég indverskan-kínverskan kjúklingrétt sem kom mjög skemmtilega á óvart. Uppskriftina fann ég á Pinterest og þar sem við elskum bæði indverskan og kínverskan mat, þá kom ekki annað til greina en að prófa réttinn sem fyrst. Rétturinn er mjög óvenjulegur á bragðið og því frekar erfitt að lýsa honum, en hann sameinar […]
Kjúklingur og beikon í piparostasósu

Ég eldaði þennan rétt fyrir nokkrum vikum og okkur fannst hann alveg stórkostlega góður, en mér brá heldur betur þegar ég skoðaði myndirnar sem ég tók og sá hvað rétturinn hafði myndast skelfilega illa. Rétturinn var mjög fallegur á borði, reyndar svo að það var það fyrsta sem maðurinn minn sagði þegar hann settist við […]
Asískur kasjúhnetu kjúklingur

Glöggir lesendur hafa örugglega tekið eftir því að ég er mjög hrifin af asískum mat. Tælenskur kasjúnhetu kjúklingurinn sem ég setti á bloggið í byrjun árs er einn af vinsælustu réttunum á blogginu og líka einn uppáhalds réttur okkar á heimilinu, ég eldaði hann svo oft á tímabili að við ákváðum fyrir nokkrum mánuðum að […]
„Marry Me“ kjúklingabollur

Flestir kannast eflaust við hinn víðfræga rétt Marry Me Chicken. Ég hef eldað hann og Marry Me kjúklingapasta óteljandi sinnum, alltaf við mikla lukku. Ég varð því mjög spennt þegar ég sá Marry Me kjúklingabollur á Pinterest og prófaði réttinn skömmu seinna. Okkur fannst hann mjög góður og skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum kjötbollum. Það er […]