Svínalund í tælensk-súrsætri sósu

Ég eldaði þennan rétt eitt sunnudagskvöldið fyrir skömmu og það er óhætt að segja að rétturinn sló í gegn hjá okkur. Við erum mjög hrifin af asískum mat og þá sérstaklega réttum með súrsætri sósu en gallinn er sá að svoleiðis réttir eru ekki sérlega hollir, eða bara alls ekki hollir, yfirleitt er kjötinu velt […]

Mexíkó kjötbollur

Við á þessu heimili elskum klassískar kjötbollur með rjómasósu og líka ítalskar kjötbollur með spaghetti og því datt mér í hug að gera kjötbollur með einhverskonar mexíkósku ívafi og ég setti bara eitthvað saman úr því sem ég átti til hérna heima og útkoman var lygilega góð. Bollurnar sjálfar voru mjög bragðgóðar og sósan setti […]

Nautagúllas með BBQ og beikoni

Fyrir nítján árum síðan fór ég í enskuskóla í London, ekki nema 16 ára gömul og ég gisti hjá host fjölskyldu og fékk morgun- og kvöldverð hjá fjölskyldunni. Þó að margir hafi varað mig við því að maturinn yrði ansi vondur, þá átti ég ekki von á að hann yrði eins vondur og raun bar […]

Sturlaðar kjötbollur og dásamleg rjómasósa

Við á þessu heimili elskum kjötbollur og þær eru reglulega á borðum hjá okkur. Það er eitthvað svo notalegt við bragðmiklar kjötbollur, bornar fram með rjómasósu og rifsberjahlaupi. Um daginn var ég ekki búin að vera með kjötbollur í matinn í svolítinn tíma og fékk akút löngun í þær og ákvað að prófa eitthvað nýtt. […]

Rjómakennt hakk og spaghettí

Um daginn eldaði ég þetta rjómakennda hakk og spaghettí með ógrynni af hvítlauk, það má segja það að rétturinn hafi slegið í gegn en við vorum með háar væntingar og rétturinn fór gjörsamlega fram úr þeim. Við vorum bara tvö og þar sem uppskriftin er mjög drjúg, þá helmingaði ég hana fyrir okkur og við […]

Steikarbaka með Guinness

Í gær eldaði ég þessa dásamlegu steikarböku með Guinness bjór, beikoni, kartöflumús og smjördeigi og okkur þótti hún algjörlega himnesk. Fyrst er útbúið gúllas (sem er best að gera deginum áður og láta kólna í ísskáp) sem er sett í eldfast mót, kartöflumús er sett yfir gúllasið og kartöflumúsin síðan gratíneruð með cheddarosti. Að lokum […]

Himneskar kjötbollur

Ég elska heimilismat og kjötbollur eru í miklu uppáhaldi, ég er samt ekkert sérstaklega dugleg við að prófa nýjar uppskriftir, ég held mig yfirleitt bara við sömu uppskriftirnar og læt valið falla á þá uppskrift sem ég á hráefnin í. Síðastliðinn bolludag fengum við gesti í mat og mig langaði til þess að slá rækilega […]

Amerískt gúllas

Þessi réttur myndast ekki sérlega vel og virkar kannski ekki mjög spennandi miðað við alvöru gúllas en hann er samt svo ótrúlega góður miðað við það sem hann er að ég vil endilega gefa ykkur uppskriftina. Rétturinn er svakalega einfaldur í gerð og fljótlegur, auk þess sem hann er einstaklega bragðgóður og barnvænn, ég get […]

Adobo með svínakjöti

Þessi filipseyski svínakjötsréttur myndast svo sannarlega ekki vel og er reyndar bara ekkert fallegur á borði, en ég vona að þið takinn viljann fyrir verkið og dæmið hann ekki eingöngu út frá myndum, því það væri nefnilega mjög mikil synd því þessi réttur er æðislega góður, svo góður að ég er búin að elda hann […]

Ofnbakaðar kjötbollur og lauksósa

Kjötbollur eru í miklu uppáhaldi hjá okkur og þessar, bornar fram með lauksósu, eru ekki af verri endanum. Reyndar, þá eru þær virkilega bragðgóðar og sósan fer með þeim eins og hönd í hanska. Hlýleg og góð máltíð sem passar vel í skammdeginu. Ég held reyndar að ég hafi áður birt uppskriftina af þessum kjötbollum […]