Humar pasta

Glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir því að ég er mjög mikið fyrir humar. Reyndar, þá er ég gjörsamlega sólgin í allt sem kallast humar og þegar ég bjó í Boston, þá gjörsamlega lifði ég á lobster rolls og finnst glatað að geta ekki pantað svoleiðis á veitingastöðum hér heima. Ég verð því alltaf mjög […]
Bragðmikið humar risotto

Fyrir skömmu eldaði ég þetta humar risotto sem kom svona stórkostlega vel út að það var ekki hægt að hætta að borða það. Risottoið sjálft er bragðmikið og þegar það er toppað með smjörsteiktum humri með miklum hvítlauk, þá verður rétturinn d-á-s-a-m-l-e-g-u-r. Ekta laugardagsmatur í mínum bókum. Ég vil þó vara ykkur við því að […]
Fiski- og kartöflugratín

Fyrir skömmu sá ég umræðu á Reddit þar sem spurt var hvaða matur sé vinsæll „locally“ en þyki skrítinn af ferðamönnum og innflytjendum og einn aðili þar sagðist vera frá… ég man ekki hvaða landi, en að þar væri fiski- og kartöflugratín (cod au gratin) mjög vinsælt hjá innfæddum en að hann hefði aldrei hitt […]
Lúða í Tikka Masala

Þau sem líta reglulega hér inn hafa eflaust tekið eftir því að ég er mjög hrifin af lúðu. Hún er uppáhalds fiskurinn minn og gerir alla rétti betri sem hún er notuð í. Þessi lúðupanna er uppáhaldsmaturinn okkar og lúða í súrsætri sósu fylgir henni fast á hæla, báðir réttirnir eru algjört lostæti og ef […]
Lúðupanna með humri

Í vetur sagði samstarfskona mín mér frá æðislega góðum pönnufisk sem hún eldar reglulega fyrir sig og sína. Hún sendi mér uppskriftina og ég var staðráðin í að prófa réttinn fljótlega, sem ég og gerði. Ég hinsvegar er svo erfið með það að ég get aldrei bara farið eftir uppskriftum (ekki einu sinni mínum eigin!) […]
Skötuselur í parmesan rjómasósu

Fyrir nokkrum mánuðum sendi ég manninn minn í fiskbúð eftir lúðu. Hann sá þar afskaplega girnilegan skötusel og keypti hann líka, fullviss um að ég gæti búið til eitthvað sniðugt úr honum. Skötuselurinn var ekki á vikumatseðlinum og ég hafði lítið rými fyrir breytingum, þar sem vikumatseðillinn var samansettur úr mikið af hráefnum sem ég […]
Lúða í súrsætri sósu

Lúða er uppáhalds fiskurinn okkar og það var ekki við öðru að búast en að ég fengi stjörnur í augun þegar ég sá uppskrift af lúðu í súrsætri sósu á veraldarvefnum. Við elskum lúðu, við elskum súrsæta sósu og í raun allan klístraðan asískan mat. Ég breytti því vikumatseðlinum lítillega og eldaði réttinn strax deginum […]
„Marry Me“ lax á einni pönnu

Flestir kannast eflaust við hinn fræga rétt „Marry Me Chicken“, enda hefur rétturinn farið sem stormsveipur um veraldarvefinn undanfarin misseri. „Marry Me Chicken“ er í miklu uppáhaldi hjá okkur og „Marry Me“ kjúklingapasta klikkar aldrei. Þar sem við elskum lax á þessu heimili, þá kom ekki annað til greina en að prófa „Marry Me“ lax […]
Ofnbakaður fiskur með gullosti

Eins og ég hef nefnt í fyrri færslum, þá var ég svo lánsöm að fá að gjöf allskonar vörur frá Gott í matinn. Þessi ofnbakaði fiskur með gullosti, hvítlauksosti, grænmeti og muldum kartöfluflögum er einn af réttunum sem ég setti saman úr ostum frá Gott í matinn og hann var svo brjálæðislega góður að ég […]
Þorskur í pestó rjómaosta sósu

Mánudagar eru fiskidagar hjá mér og það heyrir til algjörra undantekninga að ég eldi ekki fisk á mánudögum. Þrátt fyrir það er ég frekar löt við að prófa nýjar fiskiuppskriftir og margar þeirra verða til í ísskápatiltektum hjá mér. Þessi uppskrift kom til þegar ég átti grænt pestó og rjómaost sem var búið að taka […]