Saltkaramellu súkkulaðimús

Ég elska súkkulaðimús, bæði vegna þess að hún er dásamlega góð, einföld í gerð og skotheldur hittari í matarboðum. Ég hef árum saman gert þessa súkkulaðimús, alltaf við mikla lukku. Ég ákvað þó um daginn að breyta aðeins til og bæta við rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti og saltkaramellusósu. Útkoman var alveg æðislega góð og […]

Syndsamlega góðar hnetusmjörs kökur

Þessar hnetusmjörskökur með súkkulaðibitum eru eitthvað annað dásamlega góðar. Ég hef í raun ekki margt annað um málið að segja, þið bara verðið að prófa! Þær eru mjög fljótgerðar og hráefnin þessleg að flestir eiga þau yfirleitt til í skápunum. Það tók mig ekki nema korter að segja deigið saman og örstutta stund að rúlla […]

Muffins með súkkulaði og kanil

Í fyrra útbjó ég nokkrar nestishugmyndir fyrir Matarhornið hjá Morgunblaðinu. Meðal þess sem ég útbjó voru þessi dásamlega góðu muffins með kanil og súkkulaðibitum. Ég var búin að steingleyma þeim en var svo í baksturshugleiðingum í dag (enda ekki annað hægt með þetta veður í gangi!) og mundi þá að ég átti eftir að setja […]

Marengsterta með mokkarjóma

Um helgina bauð ég fólki til okkar í mat og gerði svo brjálæðislega góða marengstertu að ég má til með að gefa uppskriftina af henni þó tertan hafi því miður ekki myndast nógu vel. Það var mjög grátt úti þennan dag og sama hvað ég reyndi, þá bara leit tertan ekki nógu vel út í […]

Besta marengsterta í heimi

Ég er alin upp við að það séu marengstertur í afmælum, fermingum, á jólunum og í matarboðum. Meira að segja fermingarkakan mín var marengsterta. Þrátt fyrir það hef ég aldrei verið neitt svakalega sólgin í marengstertur, því mér finnst þær alltaf eitthvað of eða van. Of sætar, ekki nógu sætar, of mikill þeyttur rjómi… alltaf […]

Saltkaramellu ostakaka

Ég gjörsamlega dýrka ostakökur. Þær eru svo dásamlega bragðgóðar, léttar í maga og oftar en ekki alveg gullfallegar á borði. Þegar ég bjó í Boston gerði ég mér reglulega ferð á Cheesecake Factory og keypti mér nokkrar sneiðar til þess að taka með mér heim og eiga í ísskápnum og naut þess afskaplega mikið. Einnig […]

Rocky Road með Lindubuffi

Ég er ekki mikið fyrir að baka fyrir jólin og geri það satt að segja eiginlega ekki. Ég baka oftast sörur (í ár lét ég duga að kaupa þær) og útbý Rocky Road og heimagert snickers sem við njótum yfir aðventuna. Rocky Road hefur verið ómissandi yfir aðventuna og um jólin hjá mér árum saman […]

Saltkaramellu smákaka með súkkulaðibitum

Fyrir skömmu var ég með Thanksgiving veislu hérna heima og bjó til svo dásamlega góða saltkaramellu smáköku með súkkulaðibitum í steypujárnspönnu að það bara nær engri átt. Kakan er svo dásamlega bragðgóð og með blöndu af suðusúkkulaði, rjómasúkkulaði og hvítu súkkulaði verður hún gjörsamlega ómótstæðileg. Kakan er fullkominn eftirréttur þar sem það má græja hana […]

S’mores smákaka með karamellu

Fyrir skömmu bjó ég til s’mores smákökur sem mér þóttu svo dásamlega góðar að þær hafa átt hug minn allan síðan. Mér datt seinna í hug að gera stóra s’mores smáköku í steypujárnspönnu með karamellu á milli laga og útkoman var sturlað góður eftirréttur sem hvarf ofan í mannskapinn. Súkkulaðibitar, sykurpúðar, Digestive kex og karamella…. […]

Karamellukaka með saltkaramellu kaffikremi

Flestir kannast eflaust við aðferðina að setja Royal súkkulaðibúðingsduft og bökunarkakó saman við djöflatertumix til þess að fá meira súkkulaðibragð af kökunni. Það hef ég margoft gert og er alltaf jafn ánægð með útkomuna. Þess vegna kom eiginlega ekki annað til greina en að prófa eitthvað svipað með vanillukökumixi. Ég bætti Royal karamellubúðing, sýrðum rjóma […]