Í kvöld nýtti ég kjötbollur sem ég átti í frystinum til þess að búa til góðan en fljótlegan kvöldmat þar sem það eru veikindi á heimilinu og ekki mikil orka til þess að standa við eldavélina og gera innkaup. Kjötbollurnar setti ég í ofninn, ásamt frönskum kartöflum og bar þær svo fram með þessari viskílöguðu piparostasósu með brúnuðu smjöri og rifsberjahlaupi (ég borða ekki kjötbollur nema það sé rifsberjahlaup eða hindberjasulta með) – þvílík veisla! Sósan er algjört skítmix sem ég gerði úr hráefnum sem ég átti í ísskápnum sem ég vildi losna við og hún var alveg hreint lygilega góð og nánast hægt að drekka hana. Stórtgott og mjög vert að prófa.
Viskílöguð piparostasósa með brúnuðu smjöri:
- 50 g smjör, brúnað
- 100 ml viskí
- 180 ml nautasoð
- 1 piparostur, rifinn
- 2 dl rjómi
- 1.5 tsk nýmulinn svartur pipar
- 1.5 tsk blönduð piparkorn
- Smá hvítur pipar
- 1/2 nautateningur
- 2 tsk rifsberjahlaup
Byrjið á því að brúna smjörið í litlum potti á vægum hita, það tekur um 20 mínútur. Þegar smjörið er byrjað að brúnast er hitinn hækkaður á háan og viskí hellt yfir – ath, farið varlega, það kemur mikil gufa og mjög vond lykt þegar þetta er gert – og það látið sjóða niður í tvær mínútur. Hellið nautasoði saman við þetta, lækkið hitann á miðlungsháan og setjið rifinn piparost og nautatening í pottinn líka, látið þetta malla í nokkrar mínútur. Setjið piparkorn, mulinn pipar og hvítan pipar saman við þetta. Hellið rjóma saman við og látið þetta malla þar til osturinn er alveg bráðnaður og sósan búin að þykkna aðeins. Smakkið til með rifsberjahlaupi.



