Dásamlegur tælenskur kjúklingaréttur

Fyrir skömmu eldaði ég þennan dásamlega góða tælenska kjúklingarétt, en hann varð til í ísskáps- og skápatiltekt hjá mér, þegar ég átti kjúklingabringur, grænmeti, mango chutney og sambal oelek sem ég vildi losna við, og þar sem ég átti fullan skáp af kókosmjólk og kókosrjóma, þá lá einhvern veginn beinast við að setja saman tælenskan kjúklingarétt. Mig óraði hinsvear ekki fyrir því hvað rétturinn yrði dásamlega góður, hann var svo góður að við bara gátum ekki hætt að borða og Steini dásamaði matinn við hvern bita og sagði að rétturinn væri alveg hreint sturlað góður. Ég átti sæta kartöflu sem ég setti í réttinn, þó það sé ekki alveg venjan í tælenskum réttum og það kom mjög vel út, en næst þegar ég elda réttinn ætla ég að setja hálfa sæta kartöflu og líka venjulegar kartöflur, mig grunar að það sé sturlað. Rétturinn er tiltölulega fljótgerður og því hægt að elda hann alla daga vikunnar en mér finnst þetta samt eiginlega vera helgarmatur, svona réttur sem er mjög gaman að elda á laugardagskvöldi og drekka bjór eða kampavín á meðan – eins og ég gerði og naut þess í botn. Ég mæli svo sannarlega með að þið prófið.

Tælenskur kjúklingaréttur

  • 1 kg kjúklingabringur, skornar þunnt
  • 10 hvítlauksrif, fínhökkuð
  • 1 laukur, skorinn í tvennt og svo í sneiðar
  • 1/3 púrrulaukur, strimlaður
  • 3 vorlaukar, skornir þunnt (má sleppa)
  • ½ rauð paprika, strimluð
  • ½ gul paprika, strimluð
  • 1 msk rifið engifer
  • 1 sæt kartafla, afhýdd og skorin í bita
  • 3 tsk Sambal Oelek
  • 1 dl mango chutney
  • 3 msk sweet chili sósa
  • 1 grænmetisteningur
  • 2 msk fiskisósa
  • 1 dós létt kókosmjólk
  • 250 ml (ein ferna) kókosrjómi
  • Smá skvetta sojasósa (smakkið til, ég setti góða skvettu)
  • Bragðdauf olía til steikingar
  • Hrísgrjón, til að bera fram með réttinum

Hitið olíuna á rúmgóðri pönnu þar til mjög heit. Brúnið kjúklinginn í nokkrum skömmtum og setjið til hliðar. Steikið saman lauk, púrrulauk, paprikur og sætar kartöflur í 3-4 mínútur. Bætið engifer og hvítlauk á pönnuna og steikið í 1 mínútu til viðbótar. Setjið kókosmjólk, kókosrjóma, Sambal Oelek, mango chutney, grænmetistening, sweet chili sósu og fiskisósu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið þetta malla í 10 mínútur. Setjið þá kjúklinginn, ásamt öllum safa af honum, á pönnuna og látið malla í fimm mínútur. Smakkið til með sojasósu. Berið fram með hrísgrjónum og grófsöxuðum salthnetum, ef vill.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir