Ég eldaði þennan rétt eitt sunnudagskvöldið fyrir skömmu og það er óhætt að segja að rétturinn sló í gegn hjá okkur. Við erum mjög hrifin af asískum mat og þá sérstaklega réttum með súrsætri sósu en gallinn er sá að svoleiðis réttir eru ekki sérlega hollir, eða bara alls ekki hollir, yfirleitt er kjötinu velt upp úr eggi, hveiti og kornsterkju og svo djúpsteikt, þá er eftir að útbúa súrsæta sósu sem inniheldur yfirleitt mikinn sykur og steikja grænmeti upp úr sjóðheitri olíu og setja réttinn saman – brjálæðislega gott, vissulega, en alveg einstaklega óhollt og tímafrekt. En okkur langaði í eitthvað svona súrsætt og ég fann uppskrift á netinu sem er töluvert hollari en hið hefðbundna og satt að segja, þá voru væntingar mínar ekki í neinu sögulegu hámarki, yfirleitt finnst mér svona „diet útgáfa“ af óhollum mat ekki sérlega góð en þessi réttur er alveg svakalega góður og fljótlegur í gerð. Ég vil samt taka fram að þetta á ekki að vera neinn hollusturéttur beinlínis, bara hollari en hefðbundið svínakjöt í súrsætri sósu.
Eftirrétturinn okkar þetta kvöld var hinsvegar alls ekki hollur.

Ég bjó til tvær súkkulaðibitakökur sem ég bar fram með saltkaramelluísnum frá Häagen-Dazs og þvílík himnasæla. Þið bara verðið að prófa! Þetta var heldur betur notalegt sunnudagskvöld hjá okkur.
En að aðalmáli færslunnar (þó þessi frábæri réttur hafi eiginlega fallið í skuggann af eftirréttinum en svoleiðis er það bara stundum), svínalund í súrsætri sósu. Það er eflaust hægt að nota grísahnakka eða einhvern annan part af svíni en ég átti svínalund í frystinum sem ég vildi nota og því varð hún fyrir valinu. Passið ykkur bara að ofsteikja alls ekki kjötið, þá verður það seigt. Ég snöggsteikti það til þess að brúna það að utan og kláraði svo eldunina í sósunni og kjötið var meyrt og gott.
Svínalund í súrsætri sósu:
- 5-600 g svínalund, skorin í tvennt á lengdina og svo í þunnar sneiðar
- 2 tsk sojasósa
- 2 msk bragðdauf olía
- 10 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 1 laukur, skorinn í tvennt og svo í sneiðar
- 1/2 gúrka, skorin í tvennt þversum og svo í sneiðar
- 1 lítil dós ananas (ekki safinn með)
- 1 paprika, í hvaða lit sem er, sneidd (ég notaði rauða)
- 1/2 bolli ristaðar kasjúhnetur
- 2 vorlaukar, sneiddir (má sleppa)
Sósan:
- 4 msk púðursykur
- 4 msk eplaedik
- 4 msk ostrusósa
- 2 msk sriracha
- 2 msk tómatsósa
- 2 msk sojasósa
- 2 tsk sesamolía
Setjið svínalundina í skál og blandið vel saman við 2 tsk sojasósu. Látið marinerast á meðan grænmetið er skorið niður og sósan gerð. Blandið öllum sósuhráefnunum saman í skál og setjið til hliðar. Hitið olíuna á pönnu og látið hitna mjög vel áður en svínakjötið er brúnað á öllum hliðum. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Steikið allt grænmetið og ananasinn, nema vorlaukinn, saman í nokkrar mínútur. Hellið sósunni yfir þetta og látið hana þykkna aðeins. Bætið kjötinu, ásamt öllum safa af því, á pönnuna, blandið öllu vel saman og látið malla í 3 mínútur. Takið af hitanum og setjið vorlauk og kasjúhnetur saman við. Berið strax fram.




