Kjötbollur í lauksósu

Þeir sem líta oft hingað inn hafa eflaust tekið eftir því að ég er hrifin af kjötbollum, ég gæti hreinlega lifað á þeim vikum saman án þess að fá leið á þeim. Þessar kjötbollur, í lauksósu sem ég bætti sveppum í, eru alls ekki af verri endanum, fljótgerðar og sósan bragðgóð. Ekki skemmir fyrir að rétturinn er allur gerður á einni pönnu og því er uppvaskið takmarkað, sem gerir réttinn kjörinn á virkum dögum þegar tíminn vinnur ekki alltaf með manni.

Kjötbollur í lauksósu (breytt uppskrift frá RecipteTinEats):

  • 500 nautahakk eða svínahakk
  • 1 bolli brauðrasp
  • 1 egg
  • 1/2 laukur, rifinn á rifjárni
  • 1 sóló hvítlaukur, rifinn á fínasta hlutanum á rifjárni
  • 2 tsk þurrkuð salvía
  • 1 tsk papriku duft
  • 1 tsk reykt papriku duft
  • 2 tsk laukduft
  • 2 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk þurrkað timian
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar

Blandið öllu vel saman og mótið litlar bollur. Steikið í smjöri þar til þær eru komnar með fallega steikingarhúð en eru ekki eldaðar í gegn. Takið af pönnunni og setjið til hliðar.

Lauksósa:

  • 1 laukar, skornir í tvennt og sneiddir
  • 150 g sveppir, sneiddir (má sleppa)
  • 2 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
  • 2.5 bolli nautasoð
  • 3 msk hveiti
  • 1 msk Worcestershire sósa
  • 1/2 msk Dijon sinnep
  • 1 msk fljótandi nautakraftur
  • 1-2 msk rifsberjahlaup

Bræðið smjör á sömu pönnu og bollurnar voru steiktar á. Steikið laukinn í nokkrar mínútur (ef tíminn leyfir er upplagt að leyfa honum að malla á vægum hita í 20 mínútur) og bætið svo sveppunum og hvítlauknum á pönnuna og blandið vel saman. Steikið þetta í 2-3 mínútur, stráið svo hveiti yfir þetta og blandið vel saman. Hellið nautasoðinu yfir þetta í smáum skömmtum og hrærið vel á meðan. Bragðbætið með Worcestershire sósu, Dijon sinnepi, fljótandi nautakraft og rifsberjahlaupi. Setjið bollurnar aftur á pönnuna og látið malla í nokkar mínútur.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir