Rauðvínsgljái sem passar með öllu kjöti

Nautalund og bernaise sósa er klassík sem slær alltaf í gegn en í vor borðuðum við naut og bernaise (og steikarlokur úr afgöngunum, sem er eitt það besta sem ég fæ!) svo oft að við fengum leið á bernaise sósu og ég ákvað því að gera rauðvínsgljáa með nautalundinni sem var frábær ákvörðun, útkoman var svo góð að ég eldaði naut og lamb með þessum gljáa svo oft að við fengum leið á því líka. Núna hinsvegar finn ég löngunina í góða steik með góðri sósu koma til baka og er að hugsa um að elda nautalund með þessum gljáa í kvöld, það var þá sem ég fattaði að ég átti eftir að setja þennan rauðvínsgljáa á bloggið svo fleiri gætu notið. Ég veit að rauðvínsgljái hljómar eins og flókin sósa sem maður fær sér bara á fínum steikhúsum en þessi rauðvínsgljái er svo einfaldur að api gæti gert hann og margfalt betri heldur en allir þeir sem ég hef fengið á veitingastöðum, sem mér finnst yfirleitt hafa of mikið rauðvínsbragð. Fullkomið með sunnudagssteikinni. Eins og ég nefndi, þá passar gljáinn með bæði nauti og lambi og það er sérlega gott að bera herlegheitin fram með ofnbökuðu rótargrænmeti og beikonvöfðum aspas.

Rauðvínsgljái:

  • 1/4 bolli skarlottulaukur, fínhakkaður
  • 1 msk ferskt rósmarín, fínhakkað
  • Ólífuolía til steikingar
  • 1/2 bolli rauðvín
  • 1 bolli nautasoð
  • 1/2 msk fljótandi nautakraftur frá Oscar
  • 1 tsk Dijon sinnep
  • Salt og pipar
  • 2 msk smjör

Gerið gljáann á sömu pönnu og kjötið var eldað á, án þess að þrífa hana á milli. Hitið ólífuolíu á miðlungsháum hita á pönnunni og passið að hún þekji alla pönnuna mjög vel. Steikið skarlottulauk og ferskt rósmarín í 3 mínútur. Hellið rauðvíni, nautasoði, Dijon sinnepi og nautakrafti yfir þetta og látið sjóða niður um helming. Smakkið til með salti og pipar. Látið gljáann renna í mælikönnu í gegnum fíngert sigti, setjið gljáann aftur á pönnuna og setjið tvær msk af smjöri á pönnuna. Hrærið vel þar til smjörið er bráðnað. Hellið gljáanum yfir í skál og berið strax fram.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir