Það er alveg hreint með ólíkindum hvað ég get haft uppskriftir í fórum mínum lengi án þess að láta verða af því að prófa þær. Það var einmitt þannig með þessa uppskrift, það eru sennilega tvö ár síðan systir mín sendi mér uppskriftina og sagði að þetta yrði ég að prófa og setja svo beint á bloggið. Af einhverjum ástæðum fór það sem svo að ég eldaði ekki þessa súpu fyrr en núna fyrir skömmu og það er óhætt að segja að súpan hafi verið biðarinnar virði, því hún er æðislega góð. Alveg hreint dásamlega góð, ein allra besta súpa sem ég hef smakkað um ævina. Ég sé fyrir mér að elda þessa súpu í vetur og bjóða þá uppá hana með góðu hvítlauksbrauði (þetta hérna er ekki af verri endanum!) og góðu rauðvíni og hafa logandi kerti á matarborðinu á meðan. Þessi súpa er algjört comfort food og ekki skemmir fyrir hvað hún er fljótgerð. Þið bara verðið að prófa!
Brokkolí- og cheddarsúpa með beikoni
- 250 g beikon, hakkað + meira til þess að bera fram með súpunni
- 2 msk smjör
- 2 msk beikonfita
- 1 laukur, skorinn í teninga
- Nýmulinn svartur pipar
- 1 tsk reykt paprika
- Smá cayenne pipar (má sleppa)
- 3 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 2 bollar kjúklingasoð
- 1 grænmetisteningur
- 1 kjúklingateningur
- 1 ½ tsk arómat
- 300 g brokkolí
- 2 bollar rjómi eða matreiðslurjómi
- 2 bollar ferskrifinn cheddar ostur + meira til þess að bera fram með súpunni
- 1 askja rjómaostur (ef ykkur finnst þurfa til þess að þykkja súpuna, má annars sleppa)
Steikið beikonið í rúmgóðum potti á miðlungsháum hita þar til stökkt. Takið úr pottinum og setjið til hliðar. Passið að hafa 2 msk af beikonfitu eftir í pottinum og bætið 2 msk af smjöri saman við og látið það bráðna. Bætið lauk, reyktri papriku, pipar og hvítlauk í pottinn og steikið í 2 mínútur. Hellið kjúklingasoðinu yfir þetta pg blandið öllu vel saman. Setjið kjúklingatening og grænmetistening í pottinn, ásamt brokkolíinu. Látið þetta malla í 15 mínútur. Bætið rjómanum og rjómaostinum í pottinn og látið þetta malla í aðrar 5 mínútur. Setjið cheddarostinn í pottinn og láti þetta malla þar til hann er bráðnaður. Smakkið til með cayenne pipar og arómati.
Berið strax fram með beikoni og rifnum cheddar osti.


