Núna í kvöld eldaði ég svo frábært kjúklinga lasagna að ég má til með að setja uppskriftina strax hingað inn svo fleiri geti notið hennar. Þessi uppskrift varð til fyrir algjöra tilviljun, ég átti kjúklingabringur sem ég vildi nota í kvöld og átti líka grænmeti á síðasta snúningi sem ég vildi losna við og hálfan mexíkóost og pakka af tortillum sem var búið að taka af og ég vildi líka losna við. Ég fékk þá hugmynd að gera mexíkóskt kjúklinga lasagna úr þessum hráefnum af því það lá einhvern veginn beinast við, þó að við séum ekki mikið fyrir lasagna. Útkoman var svo frábær að Steini, sem hvorki fílar lasagna né mexíkóskan mat, fékk sér þrisvar á diskinn og dásamaði matinn við hvern bita. Þar sem við vorum bara tvö í mat, þá lét ég lasagnað eitt og sér duga fyrir okkur en ef við hefðum verið með gesti í mat hefði ég eflaust borið lasagnað fram með salati og svörtu Doritos og jafnvel sýrðum rjóma sem hefði væntanlega verið frábært en lasagnað er nógu frábært til þess að meðlæti sé ekki nauðsynlegt heldur auka lúxus. Það er hægt að útbúa lasagnað með fyrirvara, ég útbjó það í hádeginu og setti það svo í ofninn þegar kvöldmatartíminn rann upp. Stórgott og vert að prófa!
Mexíkóskt kjúklinga lasagna:
- 3-4 kjúklingabringur, skornar í munnbita
- 1 rauð paprika, skorin smátt
- 1/2 rauðlaukur, skorinn smátt
- Nokkrir sveppir, sneiddir og hakkaðir aðeins
- 4 sóló hvítlaukar, hakkaðir
- 1 bréf Fajita krydd frá Santa Maria
- 1 krukka taco sósa (ég notaði hot taco sósu)
- 3 dl matreiðslurjómi
- 1/2 mexíkóostur, rifinn
- 1 kjúklingateningur
- Tortillur
- Rifinn ostur eftir smekk
Hitið ofn í 180°. Hitið smá ólífuolíu á pönnu og steikið paprikuna, sveppina og rauðlaukinn í nokkrar mínútur, bætið næst kjúklingnum og hvítlauknum á pönnuna og blandið öllu vel saman. Steikið í 2 mínútur, bætið næst Fajita kryddinu á pönnuna og blandið öllu vel saman. Steikið í nokkrar mínútur. Setjið taco sósu, rifinn mexíkóost, matreiðslurjóma og kjúklingatening á pönnuna og látið þetta malla þar til osturinn og teningurinn hafa bráðnað alveg. Látið þetta sjóða í smástund, þar til sósan hefur þykknað, það er ekki gott að hafa hana of þunna. Ef tíminn leyfir er upplagt að leyfa þessu að malla á vægum hita í 20-30 mínútur. Setjið kjúklingablöndu í botninn á eldföstu móti, raðið tortillum yfir (það gæti þurft að klippa þær til), setjið kjúklingablöndu yfir tortillurnar og svo koll af kolli, þar til ekkert er eftir af kjúklingablöndunni. Gratínerið með rifnum osti eftir smekk og eldið í ofninum þar til osturinn er kominn með fallegan lit.



