Spicy túnfisksalat

Steini elskar túnfisksalat, og ég reyndar líka, þess vegna bý ég reglulega til svoleiðis, frekar en að kaupa, því heimagert túnfisksalat er svo margfalt betra heldur en þau sem eru seld í verslunum, auk þess sem það tekur enga stund. Í gegnum árin hef ég leikið mér að því að setja saman allskonar túnfisksalat og við erum sammála um að þessi útgáfa sé sú lang, lang, lang besta sem ég hef búið til. Alltaf þegar ég bý til þetta salat býst ég við því að eiga það í nokkra daga en það hverfur alltaf eins og dögg fyrir sólu, því það er bara ekki hægt að hætta að borða það. Auk þess er salatið gott með öllu – franskbrauði, heimilisbrauði, súrdeigsbrauði, Ritz kexi, tuc kexi, beint upp úr skálinni með skeið… þetta er alltaf gott. Þið bara verðið að prófa!

Spicy túnfisksalat:

  • 2 dósir túnfiskur í chilisósu
  • 5 egg, harðsoðin og hökkuð
  • 1 dós Voga krydd ídýfa (með rauða miðanum)
  • 1/2 rauðlaukur, fínhakkaður
  • 6 msk steiktur laukur
  • 1 msk sætt sinnep
  • 1 msk Boston gúrka (má sleppa)
  • 1 1/2 tsk arómat
  • Ógrynni af nýmuldum svörtum pipar
  • 2-4 msk majónes, ef ykkur finnst þurfa

Blandið öllu saman í skál. Geymið í lokuðum umbúðum í ísskáp í að minnsta kosti 3 klukkustundir áður en borið fram.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir