Einhvern tímann í sumar eldaði ég þennan rétt sem ég sá á All Recipes og varð strax spennt að prófa þegar ég sá innihaldslýsinguna. Myndin þar af réttinum var nefnilega ekkert sérlega girnileg og ég skoðaði því uppskriftina til þess að sjá hvað þetta væri eiginlega (ég hafði aldrei heyrt um Chicken Diablo) og fattaði strax að þetta væri eitthvað mjög gott. Nokkrum dögum seinna eldaði ég réttinn og bar hann fram með krydduðum hrísgrjónum og þetta sló svo rækilega í gegn hér heima, Steini fékk sér fjórum sinnum á diskinn og réttur sem er ætlaður fyrir þrjá til fjóra kláraðist upp til agna þrátt fyrir að við værum bara tvö. Rétturinn minnir svolítið á bragðið af eðlu, finnst mér, mjög óvenjulegt bragð með kjúklingi en alveg rosalega gott. Rauða paprikan og vorlaukurinn gáfu réttinum ferskt og gott „crunch“ og krydduðu hrísgrjónin voru gjörsamlega ómótstæðileg. Ég borðaði þau eintóm upp úr skálinni eftir að kjúklingurinn kláraðist, svo góð voru þau. Þið bara verðið að prófa!
Chicken Diablo og krydduð hrísgrjón:
Kjúklingurinn (lítillega breytt uppskrift frá All Recipes):
- 4 kjúklingabringur, skornar í tvennt
- 1/2 bolli hot pepper sósa (ég keypti hana í Hagkaup í Smáralind)
- 1 bolli sýrður rjómi
- 1/2 bolli tómatsósa
- 1/4 bolli hunang
- 1 tsk paprikuduft
- 1/2 tsk kúmin
- 1/4 bolli grænmetisolía
- 4 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- Sneiddur vorlaukur til að bera fram með réttinum
- Rauð paprika til að bera fram með réttinum, skorin í litla teninga
Blandið saman hot pepper sauce, tómatsósu, sýrðum rjóma, hunangi, paprikudufti og cumin saman í miðlungsstórri skál. Takið frá helminginn af sósunni og setjið til hliðar. Setjið kjúklingabringurnar í skálinaog blandið vel saman við marineringuna. Setjið plastfilmu yfir og látið marinerast í ísskáp í að minnsta kosti tvo klukkutíma.
Hitið grænmetisolíu á pönnu og steikið hvítlaukinn í 2 mínútur. Setjið kjúklingabringurnar á pönnuna, með marineringunni á, og steikið þær á báðum hliðum þar til þær eru eldaðar í gegn. Hitið restina af sósunni sem var tekin frá í litlum potti og berið fram með kjúklingnum, ásamt vorlauk og rauðri papriku.



Krydduð hrísgrjón:
- 2 bollar óelduð hrísgrjón
- 1 msk laukduft
- 1 msk hvítlauksduft
- 1 tsk papriku duft
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar
- 1 kjúklingateningur
- 1 grænmetisteningur
- 1 msk þurrkuð steinselja
- 1/2 tsk rauðar chili flögur
- 4 msk smjör
- 750 ml vatn
Setjið smjörið, hrísgrjónin, vatnið og kryddin í pott (mér þykir best að rífa kjúklingateninginn og grænmetisteninginn á fínasta hlutanum á rifjárninu til þess að fá þá fínt mulda eins og kryddið, þeir eru svo lengi að bráðna í heilu lagi), kveikið undir honum og blandið öllu vel saman. Hafið hitann háan. Um leið og það er byrjað að sjóða í þessu er lok sett á pottinn og hitinn lækkaður á lágan. Látið þetta malla í 18-20 mínútur. Þegar hrísgrjónin eru tilbúin er hrært upp í þeim með gaffli og jafnvel 1 msk af smjöri hrært saman við grjónin. Berið strax fram.


