Mexíkó kjötbollur

Við á þessu heimili elskum klassískar kjötbollur með rjómasósu og líka ítalskar kjötbollur með spaghetti og því datt mér í hug að gera kjötbollur með einhverskonar mexíkósku ívafi og ég setti bara eitthvað saman úr því sem ég átti til hérna heima og útkoman var lygilega góð. Bollurnar sjálfar voru mjög bragðgóðar og sósan setti punktinn yfir i-ið. Ég ætla ekki að fullyrða að þetta hafi verið alveg himneskt, en það geta ekki alltaf verið jól. Þessar kjötbollur voru mjög góðar og skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum kjötbollum, auk þess eru þær mjög einfaldar og fljótlegar í gerð. Klárlega vert að prófa.

Kjötbollur:

  • 500 g nautahakk
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 1 dl rifinn cheddar ostur
  • 1/2 rifinn mexíkóostur
  • 1 msk heitt pizzakrydd
  • 2 sóló hvítlaukar, pressaðir
  • 1/4 rauðlaukur, hakkaður
  • 1/3 rauð paprika, hökkuð

Blandið öllu saman og mótið bollur. Raðið þeim í eldfast mót og setjið í ofn á 200° í 10 mínútur. Á meðan bollurnar eru í ofninum er sósan gerð.

Sósan:

  • 250 g rjómaostur
  • 1/2 mexíkóostur, rifinn
  • 1 krukka taco sósa (230 g)
  • 1 grænmetisteningur
  • 1 msk sojasósa

Setjið allt í pott og látið malla þar til sósan er slétt. Þynnið hana með smá mjólk ef ykkur finnst þurfa. Takið bollurnar úr ofninum og hellið sósunni yfir þær. Setjið bollurnar aftur í ofninn í 10-15 mínútur.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir