Fyrir tuttugu árum síðan fór ég í enskuskóla í London, ekki nema 16 ára gömul og ég gisti hjá host fjölskyldu og fékk morgun- og kvöldverð hjá fjölskyldunni. Þó að margir hafi varað mig við því að maturinn yrði ansi vondur, þá átti ég ekki von á að hann yrði eins vondur og raun bar vitni, guð minn almáttugur hvað maturinn var vondur. Ég endaði á að kaupa smákökur og snakk í Sainsbury’s og faldi það í herberginu mínu til þess að borða eftir kvöldmat þar sem ég píndi ofan í mig nokkra bita og afsakaði mig svo frá matarborðinu og ég er nokkuð viss um að hjónin sem ég bjó hjá hafi haldið að ég væri með anorexíu…. þegar fyrsta helgarfríið frá skólanum kom ákvað ég að skreppa til Nottingham að heimsækja Þorgerði frænku mína og fjölskylduna hennar og þar fékk ég í fyrsta sinn í 10 daga góðan mat. Þorgerður er snilldar kokkur og eldaði frábært nautagúllas og ég borðaði svo mikið að ég á afvelta í sófanum eftir á. Í minningunni var nautagúllasið með BBQ sósu og beikoni, en það gæti verið misminni, ég man bara hvað mér fannst þetta svakalega gott. Ég spurði svo Þorgerði um þetta gúllas um daginn og var að vona að þetta væri einhver uppskrift sem hún væri búin að nota í áratugi og myndi strax vita hvað ég væri að tala um en nei, Þorgerður vissi ekkert um hvað ég var að tala og sagðist þar að auki ekki borða BBQ sósu.
Það var því ljóst að ég yrði að setja saman eitthvað sjálf ef ég vildi smakka eitthvað í líkingu við þetta gúllas aftur svo ég setti bara eitthvað saman, ég ákvað að gera gúllas í líkingu við ungverska nautagúllasið góða nema sleppa tómötum og setja rauðvín, nautasoð, BBQ sósu og fleira í gúllasið og útkoman var besta gúllas sem við höfum nokkurn tímann smakkað. Steini elskar ungverska nautagúllasið en hann sagði að honum þætti þetta það langbesta sem hann hafi smakkað um ævina, sem er mikið hrós því hann elskar gúllas og er mjög kröfuharður um það. Ég bar réttinn fram með New York Times brauði, þeyttu brúnuðu smjöri og rauðvíni – þvílík veisla! Þið bara verðið að prófa.
Nautagúllas með BBQ og beikoni:
- 1.1 kg nautakjöt, skorið í passlega gúllas bita (ég notaði rib eye og það kom æðislega vel út)
- 300 g beikon, strimlað
- 2 laukar, skornir gróft
- 4 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 500 g sveppir, sneiddir
- 2.5 msk paprikuduft
- 1 msk reykt paprikuduft
- Salt
- Nýmulinn svartur pipar
- Hvítur pipar
- 2 nautateningar
- 2 msk Worcestershire sósa
- 850 ml nautasoð
- 250 ml rauðvín
- 5 msk BBQ sósa
- 1.5 msk púðursykur
- 1-2 rauðar paprikur, skornar í teninga
- 3 gulrætur, sneiddar
- 5 kartöflur, afhýddar og skornar í teninga
- Ólífuolía til steikingar
- Steinselja til að bera fram með réttinum
Hitið ólífuolíu í rúmgóðum potti. Steikið beikonið þar til passlega stökkt. Takið úr pottinum og setjið til hliðar. Kryddið nautagúllasið með salti, nýmuldum svörtum pipar og hvítum pipar. Steikið kjötið í skömmtum upp úr beikonfitunni (bætið við ólífuolíu ef ykkur finnst þurfa) þar til það er brúnað á öllum hliðum. Setjið til hliðar. Steikið sveppina í 4-5 mínútur. Takið úr pottinum og setjið til hliðar. Steikið laukinn í nokkrar mínútur. Bætið hvítlauk saman við og steikið í 1-2 mínútur til viðbótar. Setjið nautakjötið, beikonið og sveppina saman við laukinn og blandið vel saman. Setjið papriku duft og reykt paprikuduft saman við þetta og blandið vel saman. Hellið rauðvíni yfir og látið það sjóða aðeins niður. Setjið næst nautasoð, nautateninga, BBQ sósu, Worcestershire sósu og púðursykur í pottinn og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann á lágan (ég nota stillingu 3 af 9) og látið þetta sjóða í 1 og hálfa klukkustund, með lokinu á pottinum en hafið rifu á því. Þegar þessi tími er liðinn er kartöflum, gulrótum og papriku bætt í pottinn og látið malla í 50 mínútur til viðbótar. Þá er slökkt undir pottinum og rétturinn látinn standa í 15 mínútur áður en hann er borinn fram með steinselju og nýbökuðu brauði. Ég þykkti réttinn aðeins með 1 msk af kornsterkju en því má sleppa.



