Einfaldar hnetusmjörs kökur

Ef það er einhver uppskriftaflokkur hér á blogginu sem ég myndi vilja stækka, þá eru það sætindi og bakkelsi. Ég gjörsamlega haaaaata að baka, finnst það drepleiðinlegt og græt hverja mínútu á meðan en læt mig samt hafa það af því ég elska kökur og reyndar öll sætindi ef út í það er farið. Af því leiðir að ég baka yfirleitt sömu uppskriftirnar aftur og aftur og prófa sjaldan nýjungar í þessum efnum. Þar sem það er mikið haustveður þessa dagana, þá er upplagt að vera inni að baka og þá mundi ég eftir þessum einföldu hnetusmjörskökum sem ég bakaði um daginn og vöktu mikla lukku. Þær eru æðislega góðar og það tekur enga stund að baka þær. Uppskriftin er lítil en hún gefur ca. 12 litlar kökur, svo það er um að gera að stækka uppskriftina ef þið eruð fleiri en tvö í heimili.

Hnetusmjörskökur (uppskrift frá Butter and Bliss):

  • 1/4 bolli smjör við stofuhita
  • 1/4 bolli púðursykur
  • 2 msk sykur + meira til þess að velta deigkúlunum upp úr
  • 6 msk hnetusmjör
  • 1 eggjarauða, við stofuhita
  • 1 tsk vanilludropar eða sykur (ég mæli vanillu með hjartanu og notaði mun meira)
  • 4 tsk mjólk, við stofuhita
  • 3/4 bolli hveiti
  • 1/4 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt

Hitið ofn í 175° og klæðið ofnplötu með bökunarpappír. Notið handþeytara og skál og þeytið saman smjör, púðursykur og sykur. Bætið hnetusmjörinu saman við og þeytið aðeins áfram. Bætið næst eggjarauðu, mjólk og vanillu saman við og þeytið í 2 mínútur. Setjið hveiti, matarsóda og salt í skálina og þeytið allt saman varlega í nokkrar mínútur. Rúllið 12 kúlur úr deginu og veltið þeim upp úr sykri. Raðið kúlunum á ofnplötu með 4 cm millibili. Pressið kúlurnar niður með gaffli. Bakið í 11 mínútur.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir