Sturlaðar kjötbollur og dásamleg rjómasósa

Við á þessu heimili elskum kjötbollur og þær eru reglulega á borðum hjá okkur. Það er eitthvað svo notalegt við bragðmiklar kjötbollur, bornar fram með rjómasósu og rifsberjahlaupi. Um daginn var ég ekki búin að vera með kjötbollur í matinn í svolítinn tíma og fékk akút löngun í þær og ákvað að prófa eitthvað nýtt. Úr varð að ég gerði kjötbollur með beikoni, Lawry’s seasoned salt, piparosti, parmesan osti og gerði rjómasósu úr soði af bollunum með og útkoman var gjöramlega æðisleg og við ætluðum ekki að geta hætt að borða. Steini sagðist ekki vera sérlega svangur og að hann ætlaði bara að fá sér eina bollu en hann endaði á að borða fjórar bollur og dásamaði matinn við hvern bita! Uppskriftin er drjúg, svo það er upplagt að frysta bollurnar til þess að geta hitað upp á annasömum dögum. Ég bar bollurnar og rjómasósuna fram með nýjum, soðnum kartöflum, rifsberjahlaupi og smjörsteiktum aspas – þvílík veisla! Þið bara verðið að prófa.

Kjötbollur:

  • 1 kg nautahakk
  • 250 g beikon, kurlað og steikt
  • 1 msk Lawry’s seasoned salt
  • 2 msk Worcestershire sósa
  • 3 brauðsneiðar, rifnar í matvinnsluvél
  • 2 egg
  • 150 ml rjómi
  • 1 piparostur, skorinn í teninga
  • 1/2 bolli ferskrifinn parmesan ostur
  • Nýmulinn svartur pipar eftir smekk

Blandið öllu vel saman og mótið meðalstórar bollur. Steikið bollurnar upp úr smjöri eða smjörlíki á háum hita þar til þær eru komnar með fallega steikingarhúð. Raðið bollunum í eldfast mót og látið þær dúsa í ofninum á 160° á meðan sósan og annað meðlæti er undirbúið. Hellið 2.5 dl af vatni yfir pönnuna sem bollurnar voru steiktar á og látið sjóða niður í nokkrar mínútur. Hellið soðinu í pott í gegnum sigti.

Rjómasósa:

  • 2.5 dl rjómi
  • 1.5 dl mjólk
  • 2 msk fljótandi nautakraftur frá Oscar
  • 1/2 nautateningur
  • 2 msk sojasósa
  • 2-3 msk rifsberjahlaup
  • Smá hvítur pipar
  • Smá ferskrifinn parmesan ostur

Setjið rjómann og mjólkina saman við soðið og látið suðuna koma upp. Bætið restinni af hráefnunum í pottinn og látið sósuna malla í nokkrar mínútur. Smakkið til með rifsberjahlaupi, hvítum pipar og parmesan osti. Þykkið sósuna með maizena ef vill.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir