Um daginn eldaði ég þetta rjómakennda hakk og spaghettí með ógrynni af hvítlauk, það má segja það að rétturinn hafi slegið í gegn en við vorum með háar væntingar og rétturinn fór gjörsamlega fram úr þeim. Við vorum bara tvö og þar sem uppskriftin er mjög drjúg, þá helmingaði ég hana fyrir okkur og við kláruðum allt upp til agna og ég hreinlega sá eftir því að hafa ekki gert heila uppskrift. Rétturinn er einstaklega bragðgóður og er allur gerður á einni pönnu, sem er fljótlegt, þægilegt og sparar uppvaskið. Ég myndi því segja að þetta sé fullkominn fimmtudags- og föstudagsmatur, þegar alla langar í eitthvað gott en enginn nennir að standa lengi við eldavélina eða standa í miklum frágang eftir matinn. Mig grunar að það sé klikkgott að setja beikon í þetta líka pg ætla klárlega að gera það næst. Prófið!
Rjómakennt hakk og spaghettí:
- 450 g nautahakk
- 340 g spaghettí
- 2 msk smjör
- 1 msk ólífuolía
- 10 hvítlauksgeirar, fínhakkaðir
- 1 laukur, hakkaður
- 3 bollar nautasoð
- 2 nautateningar
- 1 bolli rjómi
- 1/2 bolli ferskrifinn parmesan
- 1 bolli rifinn cheddarostur
- 1 tsk kjöt&grillkrydd
- 2 tsk hvítlauksduft
- 2 tsk laukduft
- 2 tsk papriku duft
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar
- 2 msk fersk steinselja, hökkuð
Hitið smjör og olíu á pönnu og steikið nautahakkið og laukinn í 8 mínútur. Látið umfram fitu renna af. Bætið hvítlauk, laukdufti, hvítlauksdufti, papriku dufti, salti og pipar á pönnuna og steikið í 30 sekúndur. Bætið nautasoði, rjóma og nautatening á pönnuna og blandið öllu mjög vel saman. Setjið spaghettíið á pönnuna og setjið lok á hana og látið þetta malla í 12-15 mínútur, eða þar til pastað er tilbúið og sósan þykknuð. Hrærið reglulega í þessu á meðan en hafið lokið á þegar þið eruð ekki að hræra. Þegar rétturinn er tilbúinn er cheddar osti og parmesan osti bætt á pönnuna og öllu blandað vel saman þar til ostarnir eru bráðnaðir. Stráið steinselju yfir réttinn og berið strax fram.




