Um daginn eldaði ég þennan kjúkling í rjómasósu og hann var vægast sagt dásamlega góður. Uppskriftina sá ég hjá sænskum matarbloggara á Instagram og bað vinkonu sem talar sænsku að þýða uppskriftina fyrir mig. Ég breytti uppskriftinni aðeins og útkoman var æðislegur réttur sem við hreinlega mokuðum í okkur. Ég lét duga að bera hann fram með rifsberjahlaupi og ruccola en ef ég hefði verið með gesti hefði ég gert kartöflumús með og jafnvel haft smjörsoðinn maís með líka, mig grunar að það passi mjög vel með þessu. Rétturinn er líka mjög fljótgerður og allur gerður á einni pönnu, svo þetta er fullkominn föstudagsmatur, þegar allir vilja hafa eitthvað gott í matinn en eru þreyttir eftir vinnuvikuna. Prófið!
Kjúklingur í dásamlegri rjómasósu:
- 600 kjúklingabringur
- Nýmulinn svartur pipar
- Hvítur pipar
- Smjör til steikingar
- 3 dl rjómi
- 1 dl mjólk
- 2 msk fljótandi nautakraftur frá Oscar
- 1.5 msk sojasósa
- 3-4 msk rifsberjahlaup
- 1-2 handfylli steinselja, hökkuð
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt eða þrennt (eftir stærð) á lengdina og kryddið með nýmuldum svörtum pipar og hvítum pipar. Steikið upp úr smjöri þar til kjúklingurinn er kominn með fallega steikingarhúð. Blandið saman rjóma, mjólk, sojasósu og nautakrafti og hellið yfir kjúklinginn. Smakkið til með rifsberjahlaupi. Látið þetta malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Stráið steinselju yfir réttinn og berið fram með rifsberjahlaupi og hverju því sem hugurinn girnist – salati, kartöflum og maís.


