Spaghettí með hvítlauksolíu og pancetta

Í kvöld ætlaði ég að elda þorskhnakka en á síðustu stundu kom í ljós að ég yrði ein í mat – eitthvað sem gerist næstum því aldrei. Ég ákvað því að fresta þorskhnakkanum og nýta tækifærið vel og elda spaghettí með pancetta sem ég var búin að vera með augastað á í dágóðan tíma og keypti m.a.s pancetta í Costco fyrir pastað og setti í frystinn til þess að vera tilbúin þegar tækifærið gæfist, því maðurinn minn þolir ekki pasta, og sérstaklega ekki pastarétti með fáum hráefnum. Hann segist upplifa sig eins og hann sé að borða dagblöð þegar hann borðar pasta, sérstaklega ef það er ekki smekkfullt af próteini og grænmeti. Algjört rugl en hann um það. Þessi réttur var því á borðum hjá mér rétt í þessu og guð minn góður hvað hann var dásamlega góður og algjörlega biðarinnar virði. Ég gúffaði réttinn í mig fyrir framan Desperate Housewives og fékk mér svo skúffuköku og bjór í eftirrétt. Þið getið rétt svo ímyndað ykkur hamingjuna hjá grasekkjunni! Þið bara verðið að prófa, rétturinn er mjög fljótgerður, með ódýrum hráefnum og æðislega fallegur á borði.

Spaghettí með hvítlauksolíu og pancetta (breytt uppskrift frá Nigella):

  • 250 g spaghettí
  • 250 g pancetta
  • 8 msk hvítlauksolía
  • 1 bolli ferskrifinn parmesan (mjög vel þjappað)
  • 1/2 bolli pastavatn
  • 1-2 handfylli grófklippt steinselja (plús meira til þess að bera fram með réttinum)
  • Nýmulinn svartur pipar

Hitið ofn í 240°. Sjóðið spaghettí eftir leiðbeiningum í vel söltu vatni. Setjið pancetta og hvítlauksolíu í eldfast mót og blandið vel saman, passið að olían þekji allt pancettað. Setjið í ofn í ca. 10 mínútur, en spaghettíið þarf svipaðan suðutíma. Þegar pancettað er tilbúið er spaghettíið veitt með töng úr pottinum yfir í eldfasta mótið og blandað vel saman við pancettað og olíuna. Setjið parmesan ost og 1/2 bolla af pastavatni saman við og blandið þessu vel saman þar til osturinn er bráðnaður, það gæti þurft að hræra í þessu í dágóðan tíma. Blandið að lokum steinseljunni saman við þetta. Berið strax fram með steinselju, ferskrifnum parmesan og nýmuldum svörtum pipar (hann var ekki í uppskriftinni en mér fannst fáránlegt að hafa hann ekki).

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir