Brauðréttur með skinku, beikoni og aspas

Stundum geri ég brauðrétt í kvöldmat af því brauðréttir eru svo æðislega góðir en því miður alltof sjaldan bornir fram, það eru ekki veislur daglega, því er bara stundum hreinlega nauðsynlegt að gera sér brauðrétt. Ég gæti lifað á brauðréttum en þar sem þeir eru ekki beinlínis hollir eða næringarríkir, þá læt ég það ekki eftir mér en þegar ég geri brauðrétt á annað borð fer ég alla leið með það og geri þá eins djúsí og bragðmikla og hægt er. Þessi brauðréttur er alveg hreint sturlaður, bragðmikill og hvarf af borðinu á mettíma. Þið bara verðið að prófa!

Brauðréttur:

  • 250 g skinka, skorin í bita
  • 250 g beikon, strimlað
  • 1 stór dós aspas
  • 1 stór dós sveppir
  • 1 box beikonsmurostur
  • 1 box skinkumyrja
  • 1 grænmetisteningur
  • Arómat eftir smekk
  • Mjólk til þess að þynna sósuna ef þarf
  • 1/2 franskbrauð, ristað og skorið í teninga
  • Rifinn sterkur gouda eftir smekk
  • Paprikuduft eftir smekk

Hitið ofn í 200°. Steikið skinku og beikon þar til passlega stökk, bætið þá sveppunum á pönnuna og steikið í smástund í viðbót. Setjið beikonsmurost, skinkumyrju, grænmetistening, allan safann af sveppunum, allan safann af aspasnum og aspas eftir smekk (ég notaði helminginn af aspasnum, fannst það passlegt í þennan rétt) á pönnuna og látið þetta malla þar til ostarnir eru bráðnaðir og grænmetisteningurinn búinn að leysast upp. Smakkið til með arómati og þynnið sósuna með mjólk ef ykkur finnst þurfa. Ristið franskbrauð og skerið í teninga og raðið í eldfast mót. Hellið sósunni yfir og blandið þessu öllu vel saman, passið að allt brauðið sé hjúpað sósunni. Gratínerið með rifnum sterkum gouda eftir smekk og stráið paprikudufti yfir. Eldið í ofni þar til osturinn er kominn með fallegan lit.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir