Steikarbaka með Guinness

Í gær eldaði ég þessa dásamlegu steikarböku með Guinness bjór, beikoni, kartöflumús og smjördeigi og okkur þótti hún algjörlega himnesk. Fyrst er útbúið gúllas (sem er best að gera deginum áður og láta kólna í ísskáp) sem er sett í eldfast mót, kartöflumús er sett yfir gúllasið og kartöflumúsin síðan gratíneruð með cheddarosti. Að lokum er smjördeig sett yfir og þetta eldað í ofni… þið getið rétt svo ímyndað ykkur hvað þetta er notaleg og góð máltíð. Þið bara verðið að prófa!

Steak and Guinness Pie:

Kjötblanda:

  • 1 kg nautagúllas
  • 250 g beikon, strimlað
  • 1 tsk salt
  • 1 tsk nýmulinn svartur pipar
  • 3 msk ólífuolía
  • 200 g gulrætur, skornar í teninga
  • 100 g sellerí, sneitt
  • 15 hvítlauksrif, fínhökkuð
  • 1 laukur, skorinn í bita
  • 40 g hveiti
  • 450 ml nautasoð
  • 1 dós Guinness bjór
  • 1 lítil dolla tómatpúrra
  • 2 nautateningar
  • 3 msk Worcestershire sósa
  • 2 msk tómatsósa
  • 1 tsk púðursykur
  • 4 lárviðarlauf
  • Timian stönglar eftir smekk, ég notaði gott búnt

Kartöflumús:

  • 1.5 kg bökunarkartöflur, skrældar og skornar í fernt
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1 dl mjólk
  • 90 g smjör
  • Stórt handfylli graslaukur, fínhakkaður
  • 5 hvítlauksrif, pressuð
  • Salt
  • Pipar

Restin af bökunni:

  • 1 rúlla smjördeig
  • 1 egg, upphrært
  • 150 g rifinn cheddarostur

Kryddið nautagúllasið með salti og pipar. Hitið 1 msk af ólífuolíu í stórum þykkbotna potti og brúnið helminginn af nautakjötinu á öllum hliðum. Takið úr pottinum og setjið til hliðar. Bætið 1 msk af ólífuolíu í pottinn í viðbót og brúnið hinn helminginn af kjötinu. Takið úr pottinum og setjið til hliðar. Lækkið hitann aðeins og steikið beikonið í sama potti þar til passlega stökkt. Bætið þá gulrótum, lauk, selleríi og hvítlauk í pottinn og steikið í nokkrar mínútur. Stráið hveiti yfir þetta og blandið vel saman. Hellið helmingnum af nautasoðinu yfir og látið malla aðeins. Bætið þá restinni af nautasoðinu, Guinness bjór, nautateningum, Worcestershire sósu, nautakjötinu (ásamt öllum safa af því), tómatpúrru, sykri, timian og lárviðarlaufum í pottinn og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann á lágan, setjið lok á pottinn og látið þetta malla í eina og hálfa klukkustund. Að þeim tíma liðnum er lokið tekið af pottinum og allt látið malla í 40 mínútur í viðbót. Hrærið reglulega í þessu á meðan. Smyrjið eldfast mót lítillega og hellið kjötinu í mótið og látið það kóla í að minnsta kosti 30 mínútur, en helst lengur, inni í ísskáp yfir nótt ef tíminn leyfir.

Þegar kjötið er kólnað er kartöflumúsin gerð. Sjóðið bökunarkartöflur upp úr vel söltu vatni þar til soðnar í gegn. Látið renna af kartöflunum í sigti og látið standa í 5 mínútur. Stappið kartöflurnar saman við smjör, mjólk, sýrðan rjóma, hvítlauk, graslauk, salt, pipar og hvítan pipar. Smyrjið kartöflumúsinni yfir kjötið í eldfasta mótinu. Látið kartöflumúsina kólna sæmilega vel áður en rifnum cheddar osti er dreift yfir hana. Setjið smjördeigið yfir eldfasta mótið og skerið kantana af ef þess þarf til þess að deigið passi. Penslið með upphrærðu eggi og gerið 5 lítil göt hér og þar í deigið. Eldið í ofni við 190° í 30 mínútur. Látið hvíla í fimm mínútur áður en borið fram.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir