Himneskar kjötbollur

Ég elska heimilismat og kjötbollur eru í miklu uppáhaldi, ég er samt ekkert sérstaklega dugleg við að prófa nýjar uppskriftir, ég held mig yfirleitt bara við sömu uppskriftirnar og læt valið falla á þá uppskrift sem ég á hráefnin í. Síðastliðinn bolludag fengum við gesti í mat og mig langaði til þess að slá rækilega í gegn, svo ég lagði höfuðið í bleyti og niðurstaðan var sú að ég ákvað að gera kjötbollur með púrrulaukssúpu og setja allt sem mér finnst gott í kjötbollum saman við, meðal annars beikon, parmesan ost, Dijon sinnep og hvítlauk. Útkoman var gjörsamlega himnesk! Gestirnir dásömuðu matinn við hvern bita og bollurnar voru ennþá betri daginn eftir, þá voru öll þessi brögð búin að brjóta sig svo vel saman og bragðið af hvítlauk og parmesan varð mjög afgerandi, alveg eins og ég vil hafa það. Ég frysti restina af bollunum og það var dásamlegt að vita af þessum fjársjóð í frystinum. Þið bara verðið að prófa!

Kjötbollur með beikoni og parmesan:

  • 1 kg nautahakk
  • 350 g beikon, kurlað og steikt
  • 1 1/2 pakki Tuc kex með beikonbragði, mulið
  • 2 bréf púrrulaukssúpa
  • 3 sóló hvítlaukar, pressaðir eða rifnir mjög fínt
  • 2 msk Dijon sinnep
  • 2 msk Worcestershire sósa
  • 2 egg
  • 1/2 bolli rjómi
  • 1 bolli ferskrifinn parmesan ostur (mjög vel þjappað)
  • Nýmulinn svartur pipar eftir smekk

Hitið ofn í 180°. Klæðið ofnplötu með bökunarpappír. Blandið öllum hráefnunum vel saman í skál. Notið ískúluskeið og mótið meðalstórar bollur og raðið þeim á plötuna (það gæti þurft tvær plötur). Eldið í ofni í 15-20 mínútur. Berið fram með kartöflumús, þessari sósu og rifsberjahlaupi og hamingjan verður taumlaus.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir