Koníakslöguð piparostasósa

Þessi koníakslagaða piparostasósa varð til fyrir algjöra tilviljun í eldhúsinu mínu. Við vorum með entrecote steikur og beikonvafinn aspas í matinn og ég vildi hafa góða koníakslagaða piparsósu með og fann uppskrift af slíkri á veraldarvefnum. Sósan klúðraðist, þrátt fyrir að ég hafi fylgt uppskriftinni og aðferðinni upp á 10, hún skildi sig og ég var dauðhrædd um að hráefnið væri allt ónýtt og vissi ekki alveg hvað ég átti að gera til að redda þessu. Ég kíkti þá í ísskápinn og sá að ég átti piparost, svo ég hellti sósunni af pönnunni sem hún var gerð á yfir í lítinn pott og reif piparost og setti í sósuna, ásamt aðeins meiri rjóma og nautatening. Útkoman var æðislega góð sósa sem fór stórvel með kjötinu. Þið bara verðið að prófa!

Koníakslöguð piparostasósa:

  • 85 ml koníak
  • 3/4 bolli nautasoð
  • 200 ml rjómi
  • 1 piparostur, rifinn
  • 1.5 tsk nýmulinn svartur pipar
  • 1.5 tsk heil svört piparkorn
  • Smá hvítur pipar
  • 1/2 nautateningur

Þegar búið er að steikja kjöt, þá er koníaki hellt yfir pönnuna og látið sjóða niður í 1 mínútu. Bætið nautasoði, rjóma, svörtum piparkornum, svörtum pipar, nautatening og hvítum pipar á pönnuna og látið suðuna koma upp. Hellið sósunni yfir í lítinn pott og rífið piparost saman við. Látið þetta malla þar til sósan er slétt og falleg.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir