Í kvöld var ég með þennan æðislega bourbon chicken í kvöldmatinn, okkur fannst hann svo góður að ég ákvað að setja hann strax á bloggið, svo fleiri gætu notið. Ég borðaði oft bourbon chicken og orange chicken þegar ég bjó í Boston og fannst réttirnir báðir frábærir, en ef ég á að vera hreinskilin, þá er ég aðeins hrifnari af bourbon chicken. Þessi uppskrift, sem ég breytti aðeins í samræmi við það sem ég átti til í skápunum, er sú allra besta sem ég hef smakkað. Ekki skemmir fyrir að rétturinn er einfaldur í gerð og ekki mikið sem þarf að skera niður og undirbúa.
Bourbon Chicken:
- 6 kjúklingabringur, skornar í munnbita
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar
- 3 msk kornsterkja
- 4 msk sojasósa
Blandið öllu saman í skál og látið marinerast á meðan annað er undirbúið.
Sósan:
- 1 bolli vatn
- 1/2 bolli kjúklingasoð
- 1/2 bolli eplasafi
- 2 msk eplaedik
- 1 bolli ljós púðursykur
- 1/3 bolli tómatsósa
- 2/3 bolli sojasósa
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk rauðar chili flögur
Blandið öllu saman í mælikönnu og setjið til hliðar.
Restin af réttinum:
- 2 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 6 msk bragðdauf olía
- 2/3 bolli viskí eða bourbon
- 1 msk kornsterkja blandað saman við 1 msk af köldu vatni
- Þunnt skorinn vorlaukur (má sleppa)
- Sesamfræm (má sleppa)
Hitið 3 msk af olíu á pönnu þar til mjög heit. Steikið helminginn af kjúklingnum þar til hann er kominn með fallega húð, í um 3 mínútur á hvorri hlið. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Setjið 2 msk af olíu á pönnuna og endurtakið leikinn með hinn helminginn af kjúklingnum. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bætið 1 msk af olíu á pönnuna og steikið hvítlaukinn í 1 mínútu. Hellið viskíinu yfir þetta og látið sjóða niður í 2 mínútur. Bætið sósunni á pönnuna og látið suðuna koma upp. Setjið kjúklinginn á pönnuna og látið þetta sjóða saman þar til sósan hefur minnkað um helming, það tekur um 20 mínútur. Setjið kornsterkjublönduna saman við þetta og látið sjóða þar til sósan hefur þykknað. Berið strax fram með vorlauk, sesamfræjum og hrísgrjónum.



