Þar sem þetta er í þriðja sinn í röð sem ég set inn humar uppskrift, þá ætti öllum að vera orðið ljóst að ég er gjörsamlega s-ó-l-g-i-n í humar og fæ ekki nóg af honum. Þennan humar brauðrétt gerði ég fyrir fermingu um helgina og það er óhætt að segja að hann hafi slegið í gegn, bæði í veislunni og þegar ég póstaði réttinum í Insta stories. Hugmyndina fékk ég út frá þessum humar með eplarjómasósu sem ég ber alltaf fram með ristuðu franskbrauði. Eitt sinn var ég að borða þennan rétt og hugsaði með mér að það væri frábært að gera brauðrétt með einhverju svona þema og rista þá brauðið, sem er algjör game changer. Þið bara verðið að prófa!
Humar brauðréttur:
- 1.5 kg skelflettur humar, hreinsaður og þerraður
- Smjör til að steikja humarinn
- 2 box rækjusmurostur
- 1 dós Campbell’s sveppasúpa
- Safinn úr einni stórri aspasdós
- 1 tsk fljótandi humarkraftur frá Oscar
- 1 grænmetisteningur
- Arómat eftir smekk
- Rifinn sterkur gouda eftir smekk
- Paprikuduft
- 3/4 franskbrauð, ristað og skorið í teninga
Hitið ofn í 200°. Steikið humarinn upp úr smjöri í 2 mínútur, takið af pönnunni og setjið til hliðar. Setjið rækjusmurost, Campbell’s sveppasúpu, aspasafa, humarkraft og grænmetistening á pönnuna og látið þetta malla þar til ostarnir eru bráðnaðir. Smakkið til með arómati. Ristið brauð, skerið í teninga og raðið í eldfast mót. Setjið humarinn á pönnuna, blandið öllu vel saman og hellið þessu yfir brauðið. Gratínerið með sterkum gouda eftir smekk og kryddið með paprikudufti. Eldið í ofni þar til osturinn er bráðnaður og kominn með fallegan lit. Berið strax fram, helst með kampavíni.


