Glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir því að ég er mjög mikið fyrir humar. Reyndar, þá er ég gjörsamlega sólgin í allt sem kallast humar og þegar ég bjó í Boston, þá gjörsamlega lifði ég á lobster rolls og finnst glatað að geta ekki pantað svoleiðis á veitingastöðum hér heima. Ég verð því alltaf mjög spennt þegar ég sé spennandi humar uppskriftir og var fljót að setja þetta pasta á vikumatseðilinn eftir að ég rak augun í það og við urðum sko heldur betur ekki fyrir vonbrigðum. Þetta er besta humarpasta sem við höfum smakkað, og meira að segja sambýlingnum, sem er almennt ekki fyrir pasta og segist vera orðinn þreyttur á humri, fannst þetta gjörsamlega sturlað og hreinsaði diskinn sinn á mettíma. Ekki skemmir fyrir hvað þetta pasta er fljótlegt og auðvelt í gerð, ég var án gríns í innan við 20 mínútur að elda réttinn og bera hann fram. Hráefnin eru fá, en ekki láta það blekkja ykkur, því rétturinn er svo margfalt betri en uppskriftin og myndirnar gefa til kynna. Umami bragð frá ostrusósunni og ógrynni af hvítlauk… það þarf varla að segja meira, er það?
Humar pasta (lítillega breytt uppskrift frá I am a food blog):
- 400 g skelflettur humar, hreinsaður og þerraður
- Smjör til að steikja humarinn
- 2 súrdeigsbrauðsneiðar, muldar í matvinnsuvél
- Ferskrifinn parmesan (má sleppa)
- 4 msk ólífuolía
- 170 g spaghettí
- 10 hvítlauksrif, skorin í sneiðar
- 1 tsk rauðar chili flögur
- 1 tsk fljótandi humarkraftur frá Oscar
- 2 msk hökkuð steinselja
- 1/3 bolli pastavatn
- 1.5 msk ostrusósa
Sjóðið spaghettí í söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka en styttið suðutímann um 1 mínútu. Setjið súrdeigsbrauðsneiðarnar í matvinnsluvél og búið til grófan brauðrasp. Hitið 1 msk af ólífuolíu á pönnu og steikið brauðraspinn þar til mátulega stökkur, rífið parmesan ost yfir þetta undir lokin og kryddið með salti og pipar. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bræðið smjör á sömu pönnu og steikið humarinn þar til eldaður í gegn. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bætið 3 msk af ólífuolíu á pönnuna og látið hitna vel. Steikið hvítlaukinn í 1 mínútu, bætið þá chili flögum, ostrusósu, steinselju og humarkrafti á pönnuna og blandið þessu vel saman. Bætið pastavatni á pönnuna og látið þetta malla í 2 mínútur. Setjið spaghettíið á pönnuna og blandið öllu mjög vel saman. Skiptið spaghettíinu á tvo diska, dreifið humar yfir og endið á að setja mjög vel af súrdeigsbrauðraspinum yfir allt saman. Berið strax fram.



