Bragðmikið humar risotto

Fyrir skömmu eldaði ég þetta humar risotto sem kom svona stórkostlega vel út að það var ekki hægt að hætta að borða það. Risottoið sjálft er bragðmikið og þegar það er toppað með smjörsteiktum humri með miklum hvítlauk, þá verður rétturinn d-á-s-a-m-l-e-g-u-r. Ekta laugardagsmatur í mínum bókum. Ég vil þó vara ykkur við því að passa að gera alls ekki of mikið því risottoið er óætt deginum eftir, verður stíft og klístrað. Uppskriftina fann ég einhversstaðar á veraldarvefnum en ég man því miður ekki hvaðan hún kom en ég breytti svo miklu að það er hreinlega orðið um allt aðra uppskrift að ræða.

Bragðmikið humar risotto:

  • 400 g skelflettur humar
  • 200 g smjör
  • 4 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
  • 1 tsk salt
  • 4 bollar vatn
  • 2 grænmetisteningar
  • 2 kjúklingateningar
  • 1 msk ólífuolía
  • 3 skarlottulaukar, fínhakkaðir
  • 1 bolli risotto grjón
  • 1 bolli hvítvín
  • 1 msk humarkraftur frá Oscar
  • Hökkuð steinselja

Sjóðið vatn með tveim kjúklingateningum og tveim grænmetisteningum þar til þeir hafa bráðnað. Lækkið undir þessu og haldið volgu. Bræðið 2 msk af smjöri og 1 msk af ólífuolíu saman í þykkbotna potti eða pönnu. Steikið skarlottulaukinn og 1 af sóló hvítlauknum upp úr þessu í 2-3 mínútur. Setjið humarkraftinn í pottinn og blandið þessu vel saman. Bætið hrísgrjónunum í pottinn og blandið öllu vel saman. Steikið hrísgrjónin í ca. fimm mínútur. Bætið salti og hvítvíni í pottinn og hrærið vel í þessu á meðan hvítvínið eyðist upp. Bætið næst soðinu, hálfum bolla í einu, smám saman í pottinn og hrærið vel á milli. Látið soðið hverfa alveg áður en næsta skammti er bætt við. Endurtakið þetta þar til komnir eru þrír bollar af soði í pottinn. Steikið hvítlaukinn upp úr restinni af smjörinu og hvítlauknum. Setjið risottoið í skálar, setjið humar og vel af smjörinu af honum yfir risottoið og að lokum steinselju yfir allt saman. Berið strax fram.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir

Humar pasta

Glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir því að ég er mjög mikið fyrir humar. Reyndar,

Lesa meira