Þetta mexíkóostapasta og hvítlauksbrauð með hvítlauks confit er alveg hreint brjálæðislega góð máltíð sem fellur í kramið hjá öllum aldurshópum. Þessar uppskriftir eru ekki beint hristar fram úr erminni svo þetta er eiginlega helgarmatur í mínum bókum. Hvítlauksbrauðið er algjört möst með pastanu og það er svo gott að ég gæti borðað það eitt og sér í kvöldmatinn og verið mjög sátt. Þið bara verðið að prófa!
Gratínerað mexíkóostapasta:
- 500 g pasta
- 1 bréf pepperoni, skorið í tvennt
- 250 g skinka, skorin í teninga
- 250 g (1 box) sveppir, skornir í fernt
- 1 rauðlaukur, skorinn í báta
- 1 rauð paprika, skorin í strimla
- 10 hvítlauksrif, pressuð
- 2 mexíkóostar, rifnir
- 1 dós Campbell’s sveppasúpa
- 1 peli kaffirjómi
- 400-500 ml matreiðlsurjómi
- Rifinn ostur eftir smekk (ég notaði sterkan Gouda)
- 1 kjúklingateningur
- 1 msk sojasósa
- Smjör til steikingar
- Ólífuolía til steikingar
Hitið ofn í 180°. Bræðið smjör og ólífuolíu saman á pönnu þar til heitt. Steikið pepperoni og skinku þar til komið með fallega steikingarhúð. Bætið sveppum, rauðlauk og papriku á pönnuna, blandið öllu vel saman og steikið í nokkrar mínútur. Setjið mexíkóost, sveppasúpu, kaffirjóma, matreiðslurjóma, kjúklingatening og sojasósu á pönnuna og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann á lágan og látið þetta malla á meðan pasta er soðið upp úr brimsöltu vatni eftir leiðbeiningum á pakka. Þegar pastað er tilbúið er vatninu hellt af og pastað sett á pönnuna. Blandið þessu vel saman og hellið í smurt eldfast mót. Gratínerið með osti og eldið í ofni í 15-20 mínútur.


Hvítlauksbrauð:
- 20 hvítlauksrif
- 100 ml ólífuolía
- 80 g smjúkt smjör
- 6 msk ferskrifinn parmesan ostur
- 2 msk hökkuð steinselja
- 2 tsk púðursykur
- 1 tsk rauðar chiliflögur
- 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar
- 1 tsk grófmulið salt
- 1 baguette brauð
- Rifinn ostur eftir smekk (ég notaði sterkan gouda)
Hitið ofn í 180°. Setjið hvítlauksrif og ólífuolíu í lítið eldfast mót með loki.

Eldið í ofni í 35 mínútur.

Setjið hvítlauksrifin í mortél og maukið þau. Setjið smjör, parmesan ost, steinselju, salt, pipar, chili flögur og púðursykur í mortélið og maukið þetta vel saman.

Skerið baguette í tvennt og síðan þversum þannig að úr verði 4 sneiðar. Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír og raðið brauðinu á plötuna. Smyrjið brauðin með hvítlaukssmjörinu.

Dreifið rifnum osti yfir.

Hækkið hitann á ofninum í 200° og eldið brauðin þar til osturinn er kominn með fallegan lit.

Skerið í minni sneiðar og setjið á disk eða fat, stráið hakkaðri steinselju yfir sneiðarnar og berið fram.


