Þessi réttur myndast ekki sérlega vel og virkar kannski ekki mjög spennandi miðað við alvöru gúllas en hann er samt svo ótrúlega góður miðað við það sem hann er að ég vil endilega gefa ykkur uppskriftina. Rétturinn er svakalega einfaldur í gerð og fljótlegur, auk þess sem hann er einstaklega bragðgóður og barnvænn, ég get ekki ímyndað mér annað en að öll börn yrðu hrifin af þessu. Við vorum bara tvö í mat og þar sem uppskriftin er drjúg áttum við afgang sem við borðuðum deginum eftir og rétturinn var ekki síðri þá. Virkilega fjölskylduvænn réttur, bæði ódýr hráfefni og ekkert mál að útbúa hann, auk þess sem allt er gert á einni pönnu sem minnkar uppvaskið.
Amerískt gúllas:
- 2 msk ólífuolía
- 1 græn paprika, skorin í teningsa
- 1 rauðlaukur, skorinn í teninga
- 5 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 500 g nautahakk
- 1/2 msk heitt pizzakrydd
- 1 msk papriku krydd
- 1 tsk laukduft
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1 msk púðursykur
- 1/2 tsk salt
- 1/2 tsk nýmulinn svartur pipar
- 1 bolli passata
- 1/2 bolli tómatsósa
- 2 1/2 bolli nautasoð
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 1 nautateningur
- 2 msk worcestershire sósa
- 1 1/2 bolli makkarónur (ósoðnar)
- 1 bolli rifinn cheddar ostur
Hitið ólífuolíu á rúmgóðri pönnu. Þegar olían er orðin passlega heit er nautahakk, laukur, paprika og hvítlaukur sett á pönnuna og steikt í nokkrar mínútur. Bætið nautasoði, passata, hökkuðum tómötum, tómatsósu, nautatening, Worcestershire sósu, papriku, hvítlauksdufti, laukdufti, salti, pipar, heitu pizzakryddi og púðursykri á pönnuna og blandið vel saman. Látið suðuna koma upp, lækkið hitann aðeins og látið þetta malla í 20 mínútur. Setjið þá makkarónurnar á pönnuna og látið sjóða í 10-12 mínútur. Blandið cheddarosti saman við og hrærið þar til osturinn er alveg bráðnaður.


