Kjötbollur eru í miklu uppáhaldi hjá okkur og þessar, bornar fram með lauksósu, eru ekki af verri endanum. Reyndar, þá eru þær virkilega bragðgóðar og sósan fer með þeim eins og hönd í hanska. Hlýleg og góð máltíð sem passar vel í skammdeginu. Ég held reyndar að ég hafi áður birt uppskriftina af þessum kjötbollum en hún þolir vel að vera birt aftur, enda með alveg eindæmum góð uppskrift, þó ég segi sjálf frá. Klárlega vert að prófa.
Kjötbollur:
- 700 g nautahakk
- 230 g svínahakk
- 1 egg, upphrært
- ¼ bolli nýmjólk
- ¼ bolli fínhakkaður laukur
- 1 bolli Ritzkex, fínmulið
- ½ bolli ferskrifinn parmesan ostur (vel þjappað)
- 5 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 1 tsk salt
- 1 tsk nýmulinn svartur pipar
- 1 tsk paprika
- 1 tsk þurrkað timjan
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1 tsk laukduft
- 1 msk nautakraftur frá Oscar
- ½ msk andakraftur frá Oscar
Hitið ofn í 175°. Klæðið ofnplötu með bökunarpappír og smyrjið hana lítillega með PAM. Blandið öllum hráefnunum vel saman og mótið bollur á stærð við golfkúlu úr kjötblöndunni. Raðið bollunum á ofnplötuna og eldið í ofni í 20-25 mínútur.
Lauksósa:
- 2 msk smjör
- 2 laukar
- 2 bréf viltsaus frá TORO
- 4 dl nautasoð
- 1.5 dl rjómi
- 2 dl nýmjólk
- 1 msk nautakraftur frá Oscar
- 1/2 msk andakraftur frá Oscar
- 1-2 msk rifsberjahlaup
- Hvítur pipar eftir smekk
- Nýmulinn svartur pipar eftir smekk
Hitið smjör á miðlungsháum hita í rúmgóðum potti. Þegar smjörið er bráðnað og byrjað að bubbla er lauknum bætt á pönnuna og þetta látið steikjast saman í 15 mínútur. Hrærið vel í þessu á meðan. Setjið tvö bréf af Viltsaus saman við laukinn og steikið í 2-3 mínútur. Bætið næst nautasoði, rjóma og mjólk, smám saman, í pottinn og hrærið vel í þessu á meðan. Setjið nautakraft, andakraft, nýmulinn svartan pipar og hvítan pipar í pottinn. Smakkið til með rifsberjahlaupi. Látið þetta malla saman í nokkrar mínútur, þar til sósan hefur þykknað.


