Saltkaramellu súkkulaðimús

Ég elska súkkulaðimús, bæði vegna þess að hún er dásamlega góð, einföld í gerð og skotheldur hittari í matarboðum. Ég hef árum saman gert þessa súkkulaðimús, alltaf við mikla lukku. Ég ákvað þó um daginn að breyta aðeins til og bæta við rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti og saltkaramellusósu. Útkoman var alveg æðislega góð og ég hugsa að ég muni halda mig við músina svona í framtíðinni. Það er jú allt aðeins betra með saltkaramellu!

Saltkaramellu-súkkulaðimús:

  • 3 egg
  • 60 g sykur
  • 4 msk saltkaramella (ég notaði frá Stonefire)
  • 200 g suðusúkkulaði
  • 150 g rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
  • 5 dl rjómi

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið lítillega. Þeytið rjómann. Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljóst. Bætið á saltkaramellunni saman við og að lokum súkkulaðinu. Blandið rjómanum varlega saman við þetta með sleikju. Hellið þessu í skál og kælið í 3 klukkustundir.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir