Saðsamur grænn drykkur

Ég vil byrja flesta daga á að fá mér grænan drykk, af því þeir eru bæði alveg dásamlega hollir og næringarríkir, auk þess sem mér finnst þeir standa með manni klukkutímum saman og draga úr allri löngun í óþarfa snarl á milli mála. Ég hef búið þennan drykk til núna í nokkur ár og ég viðurkenni að ég hef inn á milli fengið leið á honum (er annað hægt eftir að hafa drukkið þetta í hverju einasta hádegi í fimm mánuði?) en ég enda alltaf á að fara aftur í þennan drykk, því hann er hollur, næringarríkur, saðsamur og hitaeiningalítill. Það er líka mjög sniðugt að „meal preppa“ þetta og setja hráefnin fyrir hvern drykk fyrir sig í plastpoka og eiga í frystinum, þá tekur enga stund að henda í hvern og einn drykk og uppvaskið í lágmarki. Mæli með þessu!

Grænn drykkur (þessi uppskrift er ca. þrjú glös):

  • 2-3 lúkur spínat
  • 1 lúka frosið mangó
  • 1/2 epli, kjarnhreinsað
  • 1/2 gúrka
  • 1-2 stilkar spínat
  • 3 dl möndlumjólk

Setjið allt í blandara og látið hann ganga þar til þetta er orðið að sléttum drykk. Þynnið með vatni ef þetta er of þykkt.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir