Þessi réttur er alveg brjálæðislega góður, hollur og súper einfaldur í gerð. Kjúklingabringur eru soðnar og tættar og blandað saman við kjúklingasoð, hrísgrjón, taco sósu, grænmeti og krydd og öllu hellt í eldfast mót og látið dúsa inni í ofni. Það er ekkert steikingarbras og það þarf ekki mikið af áhöldum til þess að útbúa réttinn, auk þess sem húsið fyllist af góðri lykt á meðan rétturinn sér um sig sjálfur í ofninum. Okkur finnst algjört möst að bera réttinn fram með svörtu Doritos og ísköldu gosi.
Fajita Chicken Casserole:
- 3 kjúklingabringur
- 750 ml vatn
- 2 kjúklingateningar
- 1 grænmetisteningur
- 1 1/2 bolli hrísgrjón (ósoðin)
- 1 bréf fajita krydd
- 2 msk ólífuolía
- 1 1/2 bolli taco sósa
- 1 græn paprika, skorin í teninga
- 1 rauð paprika, skorin í teninga
- 3 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 1 bolli maís baunir
- 1 laukur, skorinn í teninga
- Rifinn cheddar ostur eftir smekk
Hitið ofn í 190°. Smyrjið stórt eldfast mót. Setjið kjúklingabringur, kjúklingateninga, grænmetistening og vatn í lítinn pott og sjóðið kjúklingabringurnar í 15 mínútur. Á meðan kjúklingabringurnar sjóða eru paprikur, laukur og hvítlaukur skorið niður og sett í skál til hliðar, ásamt maísnum. Takið til rúmgóða skál og setjið hrísgrjón, taco sósu, fajita krydd, ólífuolíu í skálina og blandið vel saman. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann veiddur úr pottinum, settur í stóra skál og tættur í sundur með handþeytara. Soðinu af kjúklingnum er hellt saman við hrísgrjónablönduna og öllu er blandað vel saman. Bætið kjúklingum og grænmetinu saman við og hellið öllu í eldfasta mótið. Setjið álpappír yfir mótið og setjið í ofn í 30 mínútur. Þá er rétturinn tekinn úr ofninum, cheddar osti dreift yfir hann og settur aftur í ofninn í 10 mínútur, eða þar til óskaðri áferð á ostinum er náð. Látið standa í 5 mínútur áður en borið fram.




