Fyrir skömmu sá ég umræðu á Reddit þar sem spurt var hvaða matur sé vinsæll „locally“ en þyki skrítinn af ferðamönnum og innflytjendum og einn aðili þar sagðist vera frá… ég man ekki hvaða landi, en að þar væri fiski- og kartöflugratín (cod au gratin) mjög vinsælt hjá innfæddum en að hann hefði aldrei hitt útlending sem fannst það ekki ógeðslegt, að fólk hreinlega skildi ekki að blanda saman rjóma, kartöflum og fiski en ég skil ekkert í þeim og fór beint í að finna uppskrift til þess að prófa sem fyrst, þar sem mér fannst kartöflur, fiskur og rjómi hljóma alveg hreint dásamlega vel. Ég fann uppskrift sem við prófuðum núna í kvöld og við urðum heldur betur ekki fyrir vonbrigðum, rétturinn var svo góður að ég má til með að deila uppskriftinni.
Cod au gratin:
- 650 g þorskur, skorinn í passlega bita
- Kjöt&grillkrydd
- Nýmulinn svartur pipar
- 2 góðir púrrulaukar, strimlaðir
- 500 g kartöflur, afhýddar og skornar í þunna teninga
- 50 g smjör
- 1/2 bolli hvítvín
- 1/2 bolli kjúklinga- eða grænmetissoð
- 1 kjúklingateningur
- 2 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 1 bolli rjómi
- 3/4 bolli panko brauðraspur
- 1/2 bolli ferskrifinn parmesan ostur
- 2 msk ólífuolía
Hitið ofn í 160°. Setjið afhýddar og sneiddar kartöflur í ískalt vatn í skál, helst með klökum. Bræðið smjörið á ofnþolinni pönnu og steikið púrrulaukinn og hvítlaukinn í nokkrar mínútur. Hellið vatninu af kartöflunum og bætið þeim á pönnuna og steikið allt í 6 mínútur. Hellið hvítvíni yfir þetta og látið sjóða niður í 1 mínútu. Kryddið þorskinn með nýmuldum svörtum pipar og kjöt&grillkryddi. Bætið kjúklingatening og soði á pönnuna og látið þetta allt malla saman þar til vökvinn hefur minnkað og teningurinn bráðnað. Slökkvið undir hellunni og raðið fiskinum yfir þetta, hellið svo rjómanum yfir allt saman. Blandið panko, parmesan osti og ólífuolíu saman í lítilli skál og dreifið yfir fiskinn. Eldið í ofni í 30 mínútur. Stráið ferskri steinselju yfir réttinn ef þess er óskað.


