Þessi pastaréttur vakti mikla lukku hér heima en hann inniheldur beikon, karamelluseraðan blaðlauk, smjörsteikta sveppi og gruyere ost. Rétturinn er því ekki beint hristur fram úr erminni en góður er hann og fallegur á borði, svo það er upplagt að bera réttinn fram í matarboðum og/eða um helgar, eða að minnsta kosti þegar nægur tími er til þess að dekra við kvöldmatinn.
Pasta með beikoni, karamelluseruðum blaðlauk og gruyere osti:
- 250 g ferskt fettucine
- 500 g beikon, strimlað
- 3 blaðlaukar, strimlaðir
- 450 g sveppir, sneiddir
- 4 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
- 1 msk ólífuolía
- 3 msk smjör
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk sykur
- 1 msk balsamik edik
- 1/3 bolli þurrt hvítvín
- 1 bolli rjómi
- 1 bolli pastavatn
- 2 tsk nýmalaður svartur pipar
Hitið 1 msk af ólífuolíu á pönnu og steikið beikonið þar til stökkt. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bætið 2 msk af smjöri á pönnuna, ásamt strimluðum blaðlauk, ½ tsk salti og 1 tsk af sykri og lækkið hitann á lágan. Látið blaðlaukinn karamelluserast í a.m.k 20 mínútur. Hellið þá hvítvíninu yfir og látið þetta sjóða saman þar til hvítvínið er þornað upp. Takið blaðlaukinn af pönnunni og setjið til hliðar. Bætið 1 msk af smjöri á pönnuna og steikið sveppina þar til þeir eru fallega brúnaðir. Bætið hvítlauknum á pönnuna og steikið í 1 mínútu. Setjið þá blaðlaukinn, beikonið, balsamik edik og rjóma á pönnuna og blandið öllu saman. Látið þetta malla á meðan ferskt fettucine er soðið upp úr söltu vatni. Takið frá einn bolla af pastavatninu. Þegar pastað er tilbúið er vatninu hellt af því og pastað, gruyere ostur og nýmulinn svartur pipar sett á pönnuna og öllu blandað vel saman. Þynnið sósuna með pastavatni eftir smekk. Látið malla í 1-2 mínútur. Berið strax fram.



