Þessar hnetusmjörskökur með súkkulaðibitum eru eitthvað annað dásamlega góðar. Ég hef í raun ekki margt annað um málið að segja, þið bara verðið að prófa! Þær eru mjög fljótgerðar og hráefnin þessleg að flestir eiga þau yfirleitt til í skápunum. Það tók mig ekki nema korter að segja deigið saman og örstutta stund að rúlla deiginu í kúlur og raða á bökunarplötu. Ég vil þó benda á að það þarf að hnoða kúlurnar svolítið vel saman, þar sem þetta deig er aðeins lausara í sér heldur en hefðbundið smákökudeig. Ég vil líka benda á að ég gerði mínar kökur viljandi aðeins stærri en þær áttu að vera, svo allar kökurnar kæmust fyrir að tveim bökunarplötum en það má að sjálfsögðu hafa þær minni og fleiri.
Hnetusmjörskökur með súkkulaðibitum:
- 318 g hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk gróft sjávarsalt
- 113 g smjör, brætt
- 202 g hnetusmjör (creamy)
- 100 g hvítur sykur
- 200 g púðursykur
- 2 egg
- 1 eggjarauða
- 2 tsk vanillusykur
- 340 g suðusúkkulaði, hakkað (ég notaði dropa)
Hitið ofn í 175° og klæðið bökunarplötur með bökunarpappír. Bræðið smjörið og blandið því saman við hnetusmjörið. Setjið hveiti, matarsóda, lyftiduft og salt saman í skál og blandið vel saman. Blandið sykri og púðursykri saman við hnetusmjörsblönduna. Bætið eggjunum, einu í einu, saman við og blandið öllu mjög vel saman. Bætið hveiti blöndunni saman við í smáum skömmtum og hrærið deigið þar til allt hefur blandast vel saman. Bætið súkkulaðibitunum saman við. Rúllið deiginu í kúlur og raðið á bökunarplöturnar. Bakið í ca. 12 mínútur.



