Maðurinn minn er alveg hreint sólginn í sveppasósur og biður oftast um sveppasósu þegar ég býð honum að ráða hvernig sósa er með matnum. Þannig varð þessi sósa til, þegar hann bað mig um að elda snitsel og hafa sveppasósu með. Ég ákvað, fyrst ég var að berja úr snitsel kjötið sjálf og gera allt frá grunni, að gera almennilega sósu með karamelluseruðum lauk, smjörsteiktum sveppum, rjóma og allskonar kryddum og útkoman var æðislega bragðgóð sósa sem ég er búin að elda oft síðan þá. Ég hef borið þessa sósu fram með snitseli, kjötbollum, lambahrygg og fleiru og hún passar eins og hönd í hanska með þessu öllu. Ég veit að sósan er ekki beint hrist fram úr erminni, þar sem það tekur klukkutíma að karamellusera laukinn en ég get lofað ykkur því að sósan er ómaksins virði.
Sveppasósa með karamelluseruðum lauk:
- 2 laukar, sneiddir þunnt
- 2 msk smjör
- 1 msk ólífuolía
- Salt og pipar
- 2 tsk púðursykur
- 1 sóló hvítlaukur, fínhakkaður
- 1 box sveppir, sneiddir
- 3 dl nautasoð
- 1 villisveppaostur, rifinn
- 1 bréf Sjampion – og kantarell sósa frá TORO
- 1 bréf sveppasósa frá TORO
- 2 dl rjómi
- 3 dl nýmjólk
- 1 ½ tsk nautakraftur frá Oscar
- 1 tsk andakraftur frá Oscar
- Rifsberjahlaup eftir smekk
Bræðið 1 msk af smjöri og ólífuolíu saman í potti á vægum hita. Þegar þetta hefur hitnað aðeins er laukurinn settur í pottinn og steiktur í 20 mínútur. Hrærið reglulega í honum á meðan. Kryddið með salti og pipar. Að 20 mínútum liðnum er púðursykur og hvítlaukur sett í pottinn og öllu blandað vel saman. Látið laukinn karamelluserast í 20 – 30 mínútur til viðbótar. Takið laukinn úr pottinum og setjið til hliðar. Bræðið 1 msk af smjöri í pottinum á miðlungsháum hita. Setjið sveppina í pottinn og steikið í 5 mínútur. Setjið rifinn villisveppaost og laukinn saman við sveppina og látið ostinn bráðna aðeins. Bætið nautasoði í pottinn og látið suðuna koma upp. Setjið sveppasósubréfin saman við og blandið öllu mjög vel saman. Bætið rjómanum og nýmjólkinni í pottinn í mjórri bunu og hrærið stöðugt í sósunni á meðan. Setjið nautakraft, andakraft og rifsberjahlaup eftir smekk í pottinn og látið sósuna malla í 10-15 mínútur.


