Skinkuhorn hafa verið í uppáhaldi hjá mér alveg frá því ég man eftir mér. Mér þykja þau svo æðislega góð en baka þau samt sjaldan, aðallega vegna þess að mér finnst algjört maus að útbúa þau. Þá í þessi fáu skipti sem ég baka skinkuhorn finnst mér þó tímanum mjög vel varið því skinkuhorn eru svo góð en þau hverfa því miður alltof hratt þegar þau koma úr ofninum. Mér finnst öll skinkuhorn svakalega góð en þessi skinkuhorn með sætu sinnepi og söxuðum lauk toppa allt fyrir mér, þessi uppskrift kemur úr móðurætt minni og var alltaf notuð fyrir veislur, sumarbústaðaferðir og útilegur. Ég er svakalega mikið fyrir sinnep, svo mikið að maðurinn minn stríðir mér stundum þegar ég set þrjár tegundir af sinnepi á pylsur hér heima, svo það er ekki furða að mér þyki þessi skinkuhorn algjör draumur. Þið bara verðið að prófa!
Skinkuhorn með sinnepi:
- 900 g hveiti
- 60 g sykur
- 1/2 tsk salt
- 100 g smjör
- 1 pakki þurrger
- 500 ml mjólk
Hitið mjólkina í potti á vægum hita. Bætið smjörinu út í og látið það bráðna saman við mjólkina. Bætið þurrgerinu og sykri í pottinn, takið hann af hitanum og látið standa í nokkrar mínútur. Blandið hveiti og salti saman í skál og bætið mjólkurblöndunni saman við. Hnoðið í deig og látið hefast undir viskastykki í 50 mínútur. Þá er deigið hnoðað aftur og látið standa í 30 mínútur til viðbótar.
Fylling:
- Skinka (ég nota alltaf silkiskorna skinku frá Ali)
- Rifinn ostur eftir smekk (ég mæli með sterkum gouda)
- Sætt sinnep eftir smekk (sød fransk sennep)
- 1/2 – 1 laukur, smátt saxaður
- 1 egg, upphrært og blandað saman við smá mjólk
- Sesamfræ
Þegar deigið hefur hefast er því skipt í 5 hluta, sem hver um sig er flattur út í hring og skorinn í 8 sneiðar. Raðið silkiskorinni skinku yfir sneiðarnar. Blandið saman osti, sinnepi og lauk og raðið yfir skinkuna. Rúllið sneiðunum upp og klemmið endana fasta. Klæðið bökunarplötur með bökunarpappír og raðið skinkuhornunum á plöturnar með 3-5 cm millibili. Penslið með upphrærðu eggi og stráið sesamfræjum yfir. Bakið við 200° í 10-15 mínútur.


