Kjöt í karrí sem svíkur engan

Haustið er að skella á, mér til mikillar gleði, þar sem haustið er uppáhalds árstíðin mín. Ég elska notalegheitin sem fylgja haustinu, þá sérstaklega elska ég haustlegan mat á borð við súpur, gúllas, kjöt í karrí og þess háttar. Í gær fékk ég svo akút löngun í kjöt í karrí að það kom ekki annað til greina en að það yrði í kvöldmatinn og það heppnaðist svo stórkostlega vel að ég virkilega hlakkaði til að borða afganginn í hádeginu og ákvað að setja uppskriftina beint á bloggið. Ég veit að það eiga allir sína uppskrift af kjöt í karrí en þessi máltíð heppnaðist svo vel að ég má til með að deila henni með ykkur.

Kjöt í karrí:

  • 1 kg úrbeinað lambalæri, skorið í passlega gúllasbita
  • Salt
  • Svartur pipar
  • Hvítur pipar
  • Ólífuolía
  • 2 msk lambakraftur frá Oscar
  • 2 grænmetisteningar frá Knorr
  • 1.5 lítrar vatn

Kryddið kjötið með salti, pipar og hvítum pipar. Hitið ólífuolíu í rúmgóðum potti og brúnið kjötið á öllum hliðum í nokkrum skömmtum. Þegar allt kjötið er brúnað er það sett í pottinn, ásamt lambakrafti, grænmetisteningum og vatni. Látið kjötið sjóða í a.m.k eina klukkustund, ég lét það sjóða í eina og hálfa klukkustund og við það varð kjötið meyrt og bráðnaði á tungunni.

Karrísósa:

  • 500 ml kjötsoð
  • 3 dl nýmjólk
  • 75 g smjör
  • 120 g hveiti
  • 2 msk karrí
  • 1 msk sojasósa
  • 2 kjúklingateningar

Þegar kjötið er búið að sjóða í klukkutíma er hálfur líter af soðinu tekið úr pottinum. Bræðið smjör í potti og steikið karríið upp úr smjörinu, bætið næst hveiti saman við, blandið vel saman og steikið í 1 mínútu. Bætið soði, mjólk, sojasósu og kjúklingateningum í pottinn og látið suðuna koma upp. Lækkið hitann og látið sósuna malla í fimmtán mínútur. Berið kjötið og sósuna fram með hrísgrjónum.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir