Dásamlegar kjötbollur í piparostasósu

Ég elska kjötbollur og gæti sennilega lifað á þeim vikum saman án þess að fá leið á þeim. Þess vegna varð ég mjög spennt þegar samstarfskona mín sagði mér frá hreindýrabollum í piparostasósu sem hún eldar ef hún á hreindýrahakk en notar annars nautahakk. Ég hef ekki prófað uppskriftina með hreindýrahakki (enda er ekki beint auðvelt aðgengi að því) en er búin að elda þessar kjötbollur þó nokkrum sinnum á frekar stuttum tíma. Ég er búin að breyta uppskriftinni töluvert mikið frá þeirri sem Krissa gaf mér og í kvöld fannst mér bollurnar heppnast svo vel að ég fór beint frá matarborðinu yfir í tölvuna til að setja inn uppskriftina. Um er að ræða hefðbundnar ritzkexbollur með púrrulaukssúpudufti en ég bætti við parmesan osti, beikoni, rjóma, kryddum og fleiru og útkoman er brjálæðislega góð. Bollurnar smellpassa með piparostasósunni og ég mæli eindregið með því að bera bollurnar fram með rifsberjahlaupi og ruccola. Algjört sælgæti.

Kjötbollur í piparostasósu:

  • 700 g nautahakk
  • 250 g beikon, steikt þar til stökkt og kurlað
  • 1 pakki Ritzkex, mulið
  • 2 egg
  • 5 msk rjómi
  • 1 pakki púrrulaukssúpa
  • 1 bolli ferskrifinn parmesan ostur
  • 1 msk nautakraftur frá Oscar
  • ½ msk andakraftur frá Oscar
  • 2 msk Worcestershire sósa
  • Nýmulinn svartur pipar eftir smekk

Blandið öllum hráefnunum í bollurnar vel saman. Myndið bollur (stærð eftir smekk) og steikið upp úr smjöri eða smjörlíki (ég vil frekar steikja upp úr smjörlíki, það er ekki svona gjarnt á að brenna eins og smjörið) á öllum hliðum þar til fallega brúnar. Takið af pönnunni og setjið til hliðar.

Piparostasósa:

  • 2 dl nautasoð eða vatn
  • 1 piparostur, rifinn
  • ½ líter matreiðslurjómi
  • 1 kúfuð tsk nautakraftur frá Oscar
  • ½ tsk andakraftur frá Oscar
  • Örlítill cayenne pipar
  • 5 msk rjómaostur

Helli nautasoði yfir pönnuna sem bollurnar voru steiktar á. Setjið rifinn piparost á pönnuna og blandið vel saman við nautasoðið. Látið þetta malla þar til osturinn er bráðnaður og hrærið í þessu með reglulegu millibili á meðan. Bætið matreiðslurjómanum og rjómaosti saman við og látið sósuna malla í nokkrar mínútur. Smakkið til með nautakrafti, andakrafti og cayenne pipar. Setjið bollurnar í sósuna og látið malla í 15 mínútur. Berið fram með ruccola og rifsberjahlaupi. Það má líka setja bollurnar í eldfast mót, hella sósunni yfir og elda í ofni á 180° í 25 mínútur.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir