Í vetur sagði samstarfskona mín mér frá æðislega góðum pönnufisk sem hún eldar reglulega fyrir sig og sína. Hún sendi mér uppskriftina og ég var staðráðin í að prófa réttinn fljótlega, sem ég og gerði. Ég hinsvegar er svo erfið með það að ég get aldrei bara farið eftir uppskriftum (ekki einu sinni mínum eigin!) og ég gerði töluverðar breytingar á uppskriftinni, ég notaði lúðu og bætti við humri, parmesan osti, hvítvíni og kryddum. Útkoman var æðislega góður réttur sem var enn betri deginum eftir. Prófið!
Lúðupanna með humri
- 400 g lúða, skorin í passlega bita
- 300 g skelflettur humar
- Smá hveiti
- Ólífuolía
- Smá smjör
- 200 ml hvítvín
- 100 g rjómaostur
- 300 ml matreiðslurjómi
- Salt og pipar
- 1 msk fljótandi humarkraftur
- 1 tsk andakraftur
- 1 sóló hvítlaukur, fínhakkaður
- Ferskrifinn parmesan ostur eftir smekk
- Steinselja eftir smekk, söxuð
- 1 lúka af spínati
Hitið ólífuolíu á pönnu á miðlungsháum hita og steikið humarinn í 1-2 mínútur. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bræðið smá smjör á sömu pönnu og veltið lúðunni upp úr hveiti. Steikið hana á báðum hliðum þar til hún er komin með fallega steikingarhúð. Bætið hvítlauk og hvítvíni á pönnuna og látið það sjóða niður um helming. Bætið rjómaosti, matreiðslurjóma, humarkrafti, andakrafti, salti og pipar eftir smekk á pönnuna. Látið rjómaostinn bráðna og rífið parmesan ost yfir smekk yfir. Látið þetta malla í nokkrar mínútur. Setjið hakkaða steinselju eftir smekk og humarinn á pönnuna. Látið malla í 1 mínútu til viðbótar, raðið þá spínati yfir réttinn. Berið fram með hrísgrjónum.


