Kjúklingur og beikon í piparostasósu

Ég eldaði þennan rétt fyrir nokkrum vikum og okkur fannst hann alveg stórkostlega góður, en mér brá heldur betur þegar ég skoðaði myndirnar sem ég tók og sá hvað rétturinn hafði myndast skelfilega illa. Rétturinn var mjög fallegur á borði, reyndar svo að það var það fyrsta sem maðurinn minn sagði þegar hann settist við borðið. Þess vegna skil ég ekkert hvað myndirnar eru hræðilega ljótar en ég vona að þið dæmið réttinn ekki bara út frá myndunum, það væri nefnilega algjör synd því rétturinn er dásamlega bragðgóður. Kjúklingur og beikon passa svo vel við piparostasósuna og sweet chili sósan setur endanlega punktinn yfir i-ið. Ótrúlega bragðgóður réttur sem smellpassar á föstudagskvöldum.

Kjúklingur og beikon í piparostasósu

  • 4 kjúklingabringur, skornar í munnbita
  • 250 g beikon, strimlað
  • 4 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
  • Bezt á flest kryddblanda
  • 1 piparostur, rifinn
  • 1 kjúklingateningur
  • Sweet chili sósa eftir smekk (ég notaði ca. 1 dl)
  • 4 dl matreiðslurjómi
  • Smá smjör

Hitið ofn í 180°. Steikið beikonið á pönnu þar til passlega stökkt. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bræðið smá smjör á sömu pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er kominn með fallega steikingarhúð. Kryddið með Bezt á flezt kryddblöndu eftir smekk og steikið aðeins áfram. Bætið hvítlauk á pönnuna og steikið áfram í 1 mínútu. Setjið rifinn piparost, kjúklingatening, sweet chili sósu eftir smekk, beikon og matreiðslurjóma á pönnuna og látið þetta malla þar til osturinn er bráðnaður. Hellið þessu í eldfast mót og eldið í ofni í 20-25 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir