Skötuselur í parmesan rjómasósu

Fyrir nokkrum mánuðum sendi ég manninn minn í fiskbúð eftir lúðu. Hann sá þar afskaplega girnilegan skötusel og keypti hann líka, fullviss um að ég gæti búið til eitthvað sniðugt úr honum. Skötuselurinn var ekki á vikumatseðlinum og ég hafði lítið rými fyrir breytingum, þar sem vikumatseðillinn var samansettur úr mikið af hráefnum sem ég átti sem voru á síðasta snúningi. Ég setti því skötuselinn í frystinn og eldaði hann nokkrum vikum seinna. Ég vissi eiginlega ekkert hvað ég átti að gera úr honum og langaði ekki einu sinni í fisk, svo ég endaði á að setja bara saman eitthvað sem ég fann í ísskápnum handa sambýlingnum og fékk mér svo sjálf eðlu í kvöldmat. Ég veit því ekki hvernig rétturinn kom út (smakkaði samt sósuna til og fannst hún prýðileg) en manninum mínum fannst þetta stórgott og borðaði megnið af réttinum einn. Hann mælir því með að prófa.

Skötuselur í parmesan rjómasósu

  • 800 g skötuselur, skorinn í passlega bita
  • Hveiti
  • 10 hvítlauksrif, fínhökkuð
  • 1 laukur, grófhakkaður
  • Smjör til steikingar
  • Smá ólífuolía til steikingar
  • 250 ml hvítvín
  • 300 ml rjómi
  • 2-3 handfylli ferskrifinn parmesan ostur
  • 1 msk Dijon sinnep
  • Kjöt&grillkrydd
  • Handfylli smátt söxuð steinselja
  • Nýmulinn svartur pipar eftir smekk

Hitið ólífuolíu á pönnu á miðlungsháum hita. Steikið hvítlauk og lauk þar til hefur brúnast aðeins. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Bræðið smjör á sömu pönnu, veltið skötuselnum upp úr hveiti og steikið á báðum hliðum þar til fiskurinn er kominn með fallega steikingarhúð. Kryddið skötuselinn með kjöt&grillkryddi eftir smekk. Setjið hvítlaukinn og laukinn aftur á pönnuna og hellið hvítvíni yfir. Látið hvítvínið sjóða niður í 2 mínútur. Hellið rjómanum yfir þetta. Setjið Dijon sinnep og parmesan ost á pönnuna og látið sjóða þar til osturinn hefur bráðnað. Smakkið til með kjöt&grillkryddi og nýmuldum svörtum pipar. Dreifið handfylli af steinselju yfir réttinn og látið sjóða í smástund til viðbótar. Berið fram með hrísgrjónum og ruccola.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir