Indverskur Butter Chicken

Ég hef alla tíð elskað indverskan mat, alveg síðan Tilda byrjaði með indverskar sósur á Íslandi (ætli það hafi ekki verið í kringum árið 2000?). Mér þóttu alltaf krukkusósurnar prýðilegar en eftir að ég byrjaði að elda indverskan mat frá grunni, þá vil ég ekki sjá sósur úr krukku og elda réttina alltaf frá grunni. Fyrir mörgum, mörgum árum síðan fann ég uppskrift af Butter Chicken á íslensku bloggi og var stórhrifin af uppskriftinni, svo hrifin að ég kunni uppskriftina utan að á tímabili. Svo fóru hlutirnir þannig að ég týndi uppskriftinni og fann aldrei þessa bloggsíðu aftur og ég syrgði þennan rétt afskaplega mikið og fannst aðrir réttir sem ég hef eldað ekki komast nálægt þessum í bragðgæðum. Sérstaklega fannst mér fúlt að geta ekki eldað réttinn fyrir manninn minn, sem er líka afskaplega hrifinn af indverskum mat.

Ég hugsaði oft um þennan rétt og varð alltaf hreinlega sorgmædd við tilhugsunina um að smakka þennan rétt aldrei aftur og gerði dauðaleit að honum á vefnum og í öllum mínum uppskriftasöfnum, en nei, uppskriftin var horfin fyrir fullt og allt. Það gerðist svo um daginn að ég fann uppskriftina! Ó hvað ég var glöð og setti réttinn strax á vikumatseðilinn. Við urðum sko heldur betur ekki fyrir vonbrigðum og þessi réttur verður eldaður aftur og aftur og aftur…. Ég gerði breytingar á uppskriftinni (t.d var ekki cumin, cayenne pipar eða túrmerik í upphaflegu uppskriftinni sem mér fannst hálfgerður skandall) en hún er samt að mestu óbreytt. Þið bara verðið að prófa!

Indverskur Butter Chicken

Marinering:

  • 1 kg kjúklingabringur, skornar í þrennt á breiddina
  • 2 tsk garam masala
  • 2 tsk kóríander krydd
  • 2 tsk cumin
  • 1 tsk chili duft
  • 1 tsk cayenne pipar
  • ½ tsk túrmerik
  • 5 sóló hvítlaukar, fínhakkaðir
  • 1 msk rifið engifer
  • Safi af ½ sítrónu
  • 1 lítil dolla tómat paste
  • 170 ml grísk jógúrt
  • 2 msk hvítvíns edik

Blandið öllu saman í skál og hrærið vel þannig að kjúklingurinn sé allur vel hjúpaður marineringunni. Lokið skálinni og geymið í ísskáp í 24 klukkustundir.

Restin af réttinum:

  • 100 g smjör
  • 2 laukar, grófhakkaðir
  • ½ tsk salt
  • 3 tsk paprikuduft
  • 425 g tómatpurée
  • 180 ml  kjúklingasoð
  • 250 ml rjómi

Hitið smjör á rúmgóðri pönnu á miðlungsháum hita. Þegar smjörið er orðið mjög heitt er laukurinn settur á pönnuna og steiktur þar til hann hefur brúnast vel, það tekur um 8 mínútur. Bætið næst kjúklingnum (ásamt allri marineringu) á pönnuna og steikið í 5-10 mínútur. Setjið salt, paprikuduft, tómatpurée og kjúklingasoð á pönnuna og látið þetta malla í 10 mínútur. Hrærið í þessu annars lagið. Að lokum er rjóminn settur á pönnuna, öllu blandað vel saman og látið malla í aðrar 10 mínútur. Berið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

deila uppskrift:

Facebook
Twitter
Pinterest

Fleiri uppskriftir